Lyfjaskömmtun

Þjónusta
Lyfjaskommtun 1920X1080
Þjónusta

Lyfjaskömmtun

Rétt lyf á réttum tíma. Veittu þér og þínum hugarró.

Hvað er lyfjaskömmtun?

Lyfjaskömmtun tryggir betur rétta lyfjainntöku og veitir betri yfirsýn yfir inntökuna, sérstaklega fyrir þá sem taka inn margar tegundir lyfja á mismunandi tímum.

Með lyfjaskömmtun er lyfjunum þínum pakkað í litla poka sem rúllað er saman. Innihald hvers poka er lyfið sem þú þarft að taka á þeim tíma sem skráður er á pokann, t.d morgunlyf, hádegislyf og kvöldlyf. Skömmtunarrúllan inniheldur lyf í 7, 14 eða 28 daga, allt eftir óskum hvers og eins.

Tímastilltur Lyfjaskammtari
Með lyfjaskömmtun frá Lyfju býðst þér að leigja heim tímastilltan lyfjaskammtara. Með honum færð þú réttan lyfjapoka afhentan á réttum tíma og ert minntur á með hljóði og ljósi. Lyfjaskammtarinn tryggir hugarró fyrir bæði notendur og aðstandendur þeirra með sjálfvirkum tilkynningum þegar þörf er á.

Helstu kostir lyfjaskömmtunar

  • Þú færð betri yfirsýn yfir  þína lyfjameðferð.
  • Þú tekur réttu lyfin.
  • Lyfjameðferðin skilar tilætluðum árangri.

Helstu kostir tímastillta lyfjaskammtarans

  • Meira öryggi. Rétt lyf afhent á réttum tíma.
  • Einfaldari lyfjataka. Minni þörf á að muna sjálfur eftir hverjum skammti.
  • Meira sjálfstæði. Þú getur séð um lyfjatökuna heima.
  • Hugarró fyrir aðstandendur. Allt að þrír aðstandendur geta fengið sjálfvirka tilkynningu í símann ef lyfjaskammtur er ekki tekinn.

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum til að fá persónulega ráðgjöf lyfjafræðings.

Hvaða upplýsingar koma fram á pokunum?

  • Nafn og kennitala
  • Hvenær á að taka lyfið, dagsetning og tími
  • Nafn lyfsins/lyfjanna

Pokarnir eru gegnsæir á bakhliðinni svo hægt er að sjá hvernig lyfið lítur út. Hægt er að opna pokana með fingrunum eða skærum. Auðvelt er að rífa límdu hliðina á hliðum pokanna til að opna þá.

Hvað kostar að vera í lyfjaskömmtun?

Þú greiðir eingöngu lyfin og þau vítamín og bætiefni sem koma í rúllunni auk hóflegs skömmtunargjalds. Við leitumst við að pakka hentugasta lyfinu, nema þú hafir sérstakar óskir eða þarfir. Að öðru leiti gilda reglur um greiðsluþátttöku í lyfjaskömmtun líkt og við afhendingu lyfja gegn lyfjaávísun í apóteki.

Skömmtunargjald fer eftir því hversu marga daga þú pantar hverju sinni. 

Ekki er greitt sérstaklega fyrir heimsendingu

  • 1-7 dagar: 1.140 kr.
  • 8-14 dagar: 1.595 kr.
  • 15-28 dagar: 2.845 kr.

Skömmtunargjald er innheimt með hverri lyfjaskömmtun. 

Leiguverð lyfjaskammtarans
Leiguverð á lyfjaskammtaranum er 9.990 kr. á mánuði. Í leiguverði er innifalin leiga á búnaðinum ásamt almennri tækniþjónustu.

Tengiliðaupplýsingar ef tæknileg vandræði á tækinu koma upp: Netfang: dosell@dosell.is, sími: 790 4647.

Hvernig skráir þú þig í lyfjaskömmtun?

Læknirinn þinn getur haft samband við apótek Lyfju og beðið um að lyfin þín fari í lyfjaskömmtun.

Þú getur líka óskað eftir rafrænni skömmtunarlyfjaávísun hjá lækninum þínum og komið við í næsta apóteki Lyfju og óskað eftir lyfjaskömmtun. Í kjölfarið er gerður þjónustusamningur við apótek Lyfju þar sem þú getur valið um að sækja lyfin þín í apótekið eða fengið þau heimsend.

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum til að fá persónulega ráðgjöf lyfjafræðings.

Aðeins er hægt að setja töflur og hylki í lyfjaskömmtun. Ef þú færð önnur lyf sem ekki er hægt að skammta, t.d. freyðitöflur, innöndunarlyf eða augndropa, færðu það til viðbótar við lyfjaskömmtunina í næsta apóteki Lyfju. Að auki er hægt að fá flestar gerðir vítamína og bætiefna með í lyfjaskömmtuninni.

Breytingar á lyfjum í lyfjaskömmtun

Ef læknirinn þinn breytir lyfjameðferðinni þarf að koma þeim upplýsingum til lyfjafræðings hjá Lyfju sem sér til þess að uppfæra skömmtunina í samræmi við nýja lyfjaávísun. Breytingin tekur þá ýmist gildi frá og með næstu lyfjarúllu eða með svokallaðri viðbótarskömmtun ef gera þarf breytingar strax. Þú færð þá í hendur litla aukarúllu með breytingunni sem dugar þar til rúllan sem fyrir er klárast.

1920X1080 Lyfjaskommtun 2
1920X1080 Lyfjaskommtun 2
Rétt lyf á réttum tíma. Veittu þér og þínum hugarró.

Ertu með spurningar?

Þér er alltaf velkomið að hafa samband við lyfjafræðinga okkar í næsta apóteki Lyfju, þú getur sent okkur tölvupóst á lyfja@lyfja.is eða haft samband við okkur í netspjalli Lyfju ef spurningar vakna um lyfjaskömmtunina eða lyfjaskammtarann.

Dæmi um vítamín og bætiefni sem fást í lyfjaskömmtun

Tengdar vörur