Lyfja er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Fréttir
Lyfja er Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Deila
Framurskarandi
| 12 mín lestur

Lyfja er í hópi íslenskra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja árið 2026

Creditinfo kynnti þann 13. október síðastliðinn sinn árlega lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki í Hörpu. 1.155 fyrirtæki sem stóðust ströng skilyrði Creditinfo til að verða Framúrskarandi fyrirtæki mættu til að taka við sínum viðurkenningum. 

Creditinfo hefur greint rekstur íslenskra fyrirtækja síðustu níu ár og birt lista yfir þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem eru listuð hér að neðan.

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
  • Ársreikningi skilað á réttum tíma
  • Ársreikningi skilað til RSK síðustu þrjú reikningsár
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
  • Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárin 2023-2025
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2023-2025
  • Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2023-2025
  • Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2023-2025
  • Eignir að minnsta kosti 120 milljónir króna reikningsárin 2023-2025
  • Fyrirtæki með a.m.k. 2 milljarða í rekstrartekjur þurfa að svara sjálfbærnispurningum
  • Félög sem falla undir lög um kynjakvóta þurfa að uppfylla kynjahlutföll í aðalstjórn (nýtt skilyrði)

Lyfja er stolt yfir því að vera á þessum lista.

Við þökkum okkar frábæra starfsfólki og okkar góðu viðskiptavinum.