Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins
Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins
Lyfja hefur fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins, sem var stofnað af Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni árið 2004. Samhliða breytingunum mun verslun Jurtaapóteksins á Laugavegi loka. Kolbrún mun áfram koma að þróun vara Jurtaapóteksins, sem verða aðgengilegar í verslunum Lyfju frá og með 1. mars.
Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju segir kaupin á vörumerki Jurtaapóteksins vera í samræmi við stefnu fyrirtækisins um að efla framboð á hreinum vörum og auka aðgengi að þeim í verslunum Lyfju um land allt.
„Lyfja hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að bjóða upp á hreinar og náttúrulegar vörur og fellur vörumerki Jurtaapóteksins vel að þeirri stefnu. Þá er mikils virði að Kolbrún komi áfram að þróun á vöruframboði vörumerkisins, enda býr hún yfir áratuga reynslu og þekkingu á þessu sviði. Í samstarfinu verður lögð rík áhersla á að halda í þau gildi sem Jurtaapótekið hefur byggt á frá upphafi,“ segir Karen Ósk.
Kolbrún segir breytingarnar marka tímamót fyrir vörumerki Jurtaapóteksins og viðskiptavini þess og skapa ný tækifæri til áframhaldandi þróunar vöruúrvalsins og betra aðgengis að vörunum.
„Þetta eru mikil tímamót fyrir vörumerki Jurtaapóteksins. Með þessum breytingum skapast stærri vettvangur fyrir þá hugmyndafræði sem hefur mótað vörumerkið frá upphafi. Í þróun vara Jurtaapóteksins höfum við ávallt lagt áherslu á vandað hráefni, skýrt innihald og að forðast óþarfa fylli- og aukaefni, og þau vinnubrögð munu fylgja áfram með inn í næsta kafla vörumerkisins,” segir Kolbrún.









