Lyfja veitir aðgang að sálfræðiþjónustu í Lyfju appinu

Fréttir
Lyfja veitir aðgang að sálfræðiþjónustu í Lyfju appinu
Deila
Thorogkaren
| 12 mín lestur

Lyfja veitir aðgang að sálfræðiþjónustu í appi

Lyfja býður nú upp á aðstoð sálfræðings í gegnum Lyfju-appið. Þjónustan er veitt af sálfræðingum Mín líðan sem hafa frá árinu 2018 sérhæft sig í sálfræðiþjónustu á netinu og var fyrsta íslenska fjarheilbrigðisþjónustan sem fékk leyfi til reksturs frá Embætti landlæknis.

þrjár þjónustuleiðir séu aðgengilegar í Lyfju appinu sem auðveldi aðgengi skjólstæðinga að viðeigandi þjónustu.

„Í fyrsta lagi geta nú notendur Lyfju-appsins tekið frítt stöðumat sem felst í örfáum spurningum með áherslu á helstu áhrifaþætti andlegrar heilsu, svo sem kvíða, streitu, þunglyndi og lágt sjálfsmat. Í kjölfarið er mælt með næstu skrefum og bendi niðurstöður til að tilefni sé til að kafa dýpra, geta skjólstæðingar svarað ítarlegri spurningalista. Í framhaldi af því er hægt að bóka 15 mínútna ráðgjöf með löggildum sálfræðingi hjá Mín líðan sem fer yfir niðurstöðurnar og mælir með næstu skrefum. Þriðja leiðin er svo að bóka hefðbundið 50 mínútna fjarviðtal.“

Markmiðið að stytta biðtíma og veita faglega þjónustu
Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, segir að markmiðið sé að veita faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem biðtími sé stuttur og þjónustan aðgengileg á forsendum hvers og eins. Að auki sé hægt að framkvæma viðtölin óháð búsetu skjólstæðinga.

Bent er á að í svari heilbrigðisráðherra á Alþingi árið 2021 hafi komið fram að biðtími eftir viðtali við sálfræðing hjá heilbrigðisstofnunum hringinn í kringum landið væri allt að sex til sjö mánuðir og af umræðunni að dæma undanfarið hefur ástandið ekki batnað mikið.

Mikilvægt að fá þjónustu í samræmi við nýjustu tækni
Tanja Dögg Björnsdóttur, framkvæmdastjóri og sálfræðingur hjá Minni líðan segir að hlutverk sálfræðistofunnar sé einna helst að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu, ásamt því að bjóða upp á árangursríka sálfræðimeðferð með tilliti til kostnaðar og tíma. Mikilvægt sé að Íslendingar fái meðferðarúrræði og þjónustu í samræmi við nýjustu tækni.

Sálfræðiþjónustan sé aðgengileg öllum yfir 18 ára og þurfi aðeins aðgang að Lyfju appinu og rafræna innskráningu til að hefja vegferð í átt að betri andlegri líðan.

Nánari upplýsingar má finna hér.