Heilsan til framtíðar

Fréttir
Heilsan til framtíðar
Deila
3F2A1873
28. september 2026 | 12 mín lestur

Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum?

Viðburðurinn var haldinn í Hörpu þann 25. september í tilefni af 30 ára afmæli Lyfju og Alþjóðadegi lyfjafræðinga. Þar var meðal annars fjallað um heilbrigða öldrun, heilsu barna og ungs fólks, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og framtíðarhlutverk heilbrigðisstarfsfólks og apóteka. Íslenskir og erlendir sérfræðingar komu saman til að ræða hvernig fjölga megi heilbrigðum æviárum, efla forvarnir og nýta heilbrigðisauðlindir samfélagsins betur.

Dr. David Barzilai, læknir og lektor við Harvard Medical School, var aðalfyrirlesari viðburðarins ásamt Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur, formanni Lyfjafræðingafélags Íslands, sem fjallaði um lyfjafræðinga sem „leynivopn heilbrigðiskerfisins". 
Dr Tommy Wood, PhD, prófessor  í barnalækningum og taugavísindum við háskólann í Washington var með rafrænt innlit og fjallaði um hvernig við getum bætt heilaheilsuna okkar.

Viðburðinum lauk með líflegum pallborðsumræðum um hvernig efla megi heilsu almennings til framtíðar. Þar tóku þátt Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands og tölfræðingur hjá Hjartavernd, Sigrún Hallgrímsdóttir barnalæknir og Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu. Karen Ósk Gylfadóttir stýrði umræðunum.

Meginniðurstaða dagsins var að fjölgun heilbrigðra æviára væri sameiginlegt verkefni samfélagsins í heild. Til þess þyrfti að tengja betur saman forvarnir og meðferð, grípa fyrr inn í og nýta betur þá þekkingu, gögn og innviði sem þegar eru til staðar.

3F2A1223
3F2A1474
3F2A1319
3F2A1138 (1)
3F2A1480
3F2A1495
3F2A1484
3F2A1092
3F2A1458
3F2A1239
3F2A1794
3F2A1562 (1)
3F2A1715
3F2A1837 (1)
3F2A1520
3F2A1592
3F2A1526
3F2A1898
3F2A1873
3F2A1942
3F2A2004
3F2A1921
3F2A1923
3F2A2008
3F2A1935
3F2A1976
3F2A1929
3F2A1999