Nýtt apótek Lyfju í Hafnarfirði opnaði 11. september
Nýtt apótek Lyfju á Norðurhellu
Lyfja opnaði í dag nýtt apótek við Norðurhellu í Hafnarfirði. Apótekið við Norðurhellu mun meðal annars þjóna íbúum á Völlum, í Skarðshlíð og Áslandi, auk þeirra fjölmörgu sem starfa á nærliggjandi atvinnusvæðum. Mikil íbúðauppbygging hefur átt sér stað í þessum hluta Hafnarfjarðar undanfarin ár og þörf fyrir þjónustu á svæðinu hefur aukist samhliða henni.
„Við hlökkum til að efla þjónustu við Hafnfirðinga enn frekar með opnun nýs apóteks við Norðurhellu. Apótek gegna mikilvægu hlutverki í nærsamfélaginu og nú sem fyrr leggjum við áherslu á að viðskiptavinir fái persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf þegar þeir leita til okkar,“ segir Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju.
Apótekið er staðsett við hlið Krónunnar og því hægt að sækja lyf og aðra þjónustu samhliða matarinnkaupum. Þar verður boðið upp á lyfseðlaafgreiðslu, ráðgjöf lyfjafræðinga og fjölbreytt úrval apóteks- og heilsuvara ásamt hágæða húðvörum.






















