Lyfju appið valið app ársins á SVEF

Takk fyrir okkur! Lyfju appið var valið APP ÁRSINS á SVEF

Við erum afar þakklát og stolt af nýjustu verðlaunum Lyfju appsins en á dögunum hlaut Lyfju appið viðurkenningu fyrir.

  • App ársins
  • Hönnun og viðmót ársins

Góð þjónusta við viðskiptavini Lyfju skiptir okkur öllu máli og er drifkrafturinn að töfrunum sem eiga stað í gegnum Lyfju appið. Í Lyfju appinu getur þú verslað lyfseðilsskyld lyf og fengið þau send frítt heim að jafnaði innan 60 mínútna í stærstu þéttbýlisstöðum landsins eða sótt í næstu Lyfju um land allt þegar þér hentar.

Í Lyfju appinu getur þú einnig verslað hjúkrunar- og heilsuvörur og fengið sendar heim. Einnig er hægt að fá ráðgjöf í netspjalli við sérfræðinga hjá Lyfju alla daga frá 10-22 og panta símatíma hjá lyfjafræðingi til að fá ráðgjöf varðandi lyf.

Sæktu Lyfju appið hér