
Saga Lyfju hf. hófst árið 1996 þegar ákvæði nýrra lyfjalaga sem tryggðu frelsi í stofnun og rekstri lyfjabúða tóku gildi.
- Ný lyfjalög sem tryggðu frelsi í stofnun og rekstri apóteka tóku gildi. Lagabreytingin hafði mikil áhrif á markaðinn en áður höfðu yfirvöld úthlutað lyfsöluleyfum og apótekin skipt með sér markaðssvæðum. Þann 11. apríl 1996 Lyfja stofnuð af Inga Guðjónssyni og Róberti Melax og Lyfja Lágmúla opnarHeilbrigð samkeppni og skynsamleg verðlagning var orðin staðreynd í lyfsölu og vöruúrval jókst til muna.
- Fyrirtækið Lyfjabúðir stofnað af Jóhannesi Jónssyni, Guðmundi Reykjalín og þremur lyfjafræðingum. Hófu rekstur apóteka undir vörumerkinu Apótekið.
- Lyfjabúðir og Hagkaupsapótek renna saman. Samtals voru 10 Apótek á þessum tíma. Helsta aðalsmerki þeirra er lágt verð.
- Lyfja gefur út Lyfjabókina með Ými Vesteinssyni lyfjafræðingi. Ritið er ítarlegt upplýsingarit um lyf og virkni þeirra.
Heilsuvefur Lyfju var settur á laggirnar. Honum var ætlað að vera upplýsingabrunnur fyrir fólk um lyf, lyfjanotkun, almennt heilsufar og hollustu. Lyfjabókin var sett á netið á þessum tíma og er enn notuð í mjög miklu mæli bæði af fagfólki og einstaklingum.
- Lyfja byrjar að bjóða upp á heilsufarsmælingar. Í upphafi voru mælingar á blóðfitu, blóðsykri og beinþéttni. Þetta var grunnurinn að hjúkrunarþjónustu Lyfju sem enn er starfrækt í dag.
- Fyrsta netverslunin á Íslandi með lyf sett á laggirnar í samvinnu við visi.is.
- Lyfja hf. og Lyfjabúðir ehf sameinast undir nafni Lyfju hf. en rekur áfram apótek undir heitunum Lyfja og Apótekið. Félagið varð með þessu sjálfstætt félag innan Baugssamstæðunnar en var stjórnað af stofnendum Lyfju, þeim Inga Guðjónssyni og Róberti Melax.
Lyfju gert að selja frá sér fimm apótek sem í samræmi við ákvörðum samkeppnisyfirvalda vegna sameiningar Lyfju og Lyfjabúða.
Nokkur apótek af landsbyggðinni sameinast Lyfju.
Stofnendur selja hlut sinn í Lyfju til Haga sem þá átti 100% í félaginu. Skömmu síðar selja Hagar Lyfju til eignarhaldsfélagsins Árkaupa. Ingi Guðjónsson, annar stofnenda Lyfju, var áfram framkvæmdastjóri félagsins.
Lyfja kaupir Heilsu ehf., heildverslun sem rak einnig Heilsuhúsið. Heildverslunin rekin áfram sem sjálfstætt fyrirtæki en Heilsuhúsið rekið af Lyfju hf.
Sigurbjörn Gunnarsson tekur við sem framkvæmdastjóri Lyfju hf. af Inga Guðjónssyni.
Lyfja kaupir Heilsuhornið og sameinar Heilsu ehf. Verslun Heilsuhornsins á Akureyri verður Heilsuhúsið.
Viðamiklar breytingar gerðar á Lyfju og Heilsuhúsinu á Smáratorgi. Verslanirnar settar í nýtt útlit sem verður fyrirmynd að breytingum á öðrum verslunum Lyfju og Heilsuhússins.
Eignarhaldsfélagið Haf Funding eignaðist meirihluta í Lyfju hf.
Nýtt apótek Lyfju opnar við Nýbýlaveg í Kópavogi.
Lyfja hf, sem rekur verslanir undir merkjum Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins, fékk Jafnlaunavottun VR, fyrst fyrirtækja á lyfjamarkaði. Vottunin staðfestir að Lyfja hf. greiðir konum og körlum sömu laun fyrir sömu eða sambærilega vinnu.
Creditinfo veitir Lyfju hf viðurkenningu fyrir að vera framúrskarandi fyrirtæki fyrir árið 2016. Við erum afskaplega stolt af því að tilheyra þeim 1,7% fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla kröfur um fyrirmyndar fyrirtæki. Við þökkum okkar frábæra starfsfólki og okkar góðu viðskiptavinum.
Creditinfo veitir Lyfju hf viðurkenningu fyrir að vera framúrskarandi fyrirtæki fyrir árið 2017. Við erum afskaplega stolt af því að tilheyra þeim 1,7% fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla kröfur um fyrirmyndar fyrirtæki. Við þökkum okkar frábæra starfsfólki og okkar góðu viðskiptavinum.
Ný glæsileg Lyfja var opnuð við hátíðlega athöfn í Hafnarstræti 19 í miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn 26. janúar 2018.
Ný og glæsileg Lyfja var opnuð 30. ágúst og er hún staðsett í sama húsi og matvöruverslunin Nettó á Fiskislóð 3.
Eignarhald Lyfju breytist, Lyfja er 70% í eigu SÍA III og 30% í eigu einkafjárfesta. SÍA III er framtakssjóður sem er í eigu lífeyrissjóða, fjármálafyrirtækja og fagfjárfesta. Einkafjárfestarnir eru tveir, Ingi Guðjónsson, annar tveggja stofnanda Lyfju og Daníel Helgason, fjárfestir.
Sigríður Margrét Oddsdóttir tók við sem framkvæmdastjóri Lyfju hf. af Sigurbirni Gunnarssyni.
Breytingar voru gerðar á Lyfju í Smáralind og verslunin stækkuð umtalsvert.
Apótekinu á Garðatorgi er breytt í Lyfju.
2019 - Lyfja opnar í Grafarholti
Nýtt apótek Lyfju opnar við hliðina á Krónunni í Grafarholti.
Lyfja kaupir Árbæjarapótek.
Lyfja hefur umbreytingu á apótekum sínum í takt við nýja stefnu, Lyfju Smáratorgi, Lyfju Lágmúla og Lyfju í Spönginni er breytt í takt við nýjar áherslur.
Lyfju appið er sett á markað, í appinu geta notendur séð lyfseðla sína, pantað lyf, fengið lyf send heimsend á innan við klukkustund í stærstu sveitafélögum landsins, séð stöðu sína í greiðsluþrepakerfi Sjúkratrygginga Íslands, sótt um umboð til að versla lyf fyrir aðra og fengið ráðgjöf í netspjalli.
Styrktarsjóður Lyfju veitir styrki til verkefna á vegum félagasamtaka sem teljast heilsueflandi og/eða hafa forvarnargildi, úthlutað var í fyrsta sinn úr sjóðnum á árinu.
Nýtt apótek Lyfju opnar á Glerárgötu á Akureyri.
Lyfja kaupir Apótek MOS í Mosfellsbæ.
Lyfja gengur frá samningi við Kolvið um kolefnisjöfnun á starfsemi Lyfju, þannig er tryggt að Lyfja leggur sitt af mörkum gagnvart losun gróðurhúsalofttegunda. Samningurinn felur jafnframt í sér skuldbindingu til þess að halda kolefnisbókhald yfir starfsemi fyrirtækisins.
Apótekinu í Hólagarði er breytt í Lyfju.
Apótekinu í Setbergi í Hafnarfirði er breytt í Lyfju.
Lyfja kaupir rekstur Reykjavíkur apóteks í Skeifunni af Högum.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Tilgangur Jafnvægisvogarinnar er að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar, virkja íslenskt viðskiptalíf til að vera fyrirmynd jafnréttis og draga fram í sviðsljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar.
Lyfja var valið markaðsfyrirtæki ársins þegar íslensku markaðsverðlaunin (ÍMARK) voru afhent í 29. skipti við hátíðlega athöfn í Hörpu. Þetta er í fyrsta skipti sem Lyfja hlýtur þessa viðurkenningu.
Lyfja Heyrn er fyrsta verslun sinnar tegundar, þar sem viðskiptavinir geta komið og skoðað heyrnartæki, stuðningsvörur heyrnartækja og fyrirbyggjandi lausnir með aðgengi að sérfræðiráðgjöf.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) þriðja árið í röð. Tilgangur Jafnvægisvogarinnar er að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar, virkja íslenskt viðskiptalíf til að vera fyrirmynd jafnréttis og draga fram í sviðsljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar.
Lyfju appið hlaut verðlaun sem Stafræn lausn ársins og Verkefni ársins á vefum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) 2023 .Lyfju appið hefur verið í loftinu frá því í lok árs 2021, ný útgáfa með uppfærðri hönnun. og auknu vöruvali var svo gefin út í ágúst 2023. Appið breytti upplifun sem getur falið í sér bið og óþarfa bílferðir yfir í framúrskarandi þjónustuupplifun sem einkennist af öryggi og hraða.
Lyfju appið hlaut verðlaun sem Stafræn lausn ársins og Verkefni ársins á vefum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) 2023 .Lyfju appið hefur verið í loftinu frá því í lok árs 2021, ný útgáfa með uppfærðri hönnun. og auknu vöruvali var svo gefin út í ágúst 2023. Appið breytti upplifun sem getur falið í sér bið og óþarfa bílferðir yfir í framúrskarandi þjónustuupplifun sem einkennist af öryggi og hraða.
Lyfja er formlega orðin hluti af Festi samstæðunni. Festi á og rekur fyrirtæki sem eru leiðandi hvert á sínum markaði, önnur dótturfélög Festi eru Krónan, ELKO og N1, ásamt Bakkanum vöruhóteli og Yrki sem rekur fasteignir samstæðurnnar. Með Lyfjuliðinu telur starfsfólk samstæðunnar nú 2.600.
Við hjá Lyfju erum á umfangsmikilli vegferð með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði Íslendinga. Þetta gerum við í gegnum nýsköpun, með fræðslu og fyrirbyggjandi lausnum ásamt því að veita faglega lyfjafræðilega ráðgjöf um allt land. Framundan eru spennandi tímar og við hlökkum til að efla enn frekar þjónustu við viðskiptavini okkar með öflugu og framsýnu baklandi.
Lyfju appið hlaut verðlaun sem app ársins hjá Samtökum vefiðnaðarins (SVEF) 2024. Lyfju appið hefur verið í loftinu frá því í lok árs 2021 og er í stöðugri þróun.
Lyfju appið hlaut verðlaun fyrir hönnun og viðmót fyrir Lyfju appið hjá Samtökum vefiðnaðarins (SVEF) 2024. Lyfju appið hefur verið í loftinu frá því í lok árs 2021 og er í stöðugri þróun.