XyliMelts án bragðefna
40 töfluriltu losna við munnþurrk allan sólarhringinn?
XyliMelts eru litlar töflur sem loða við tennur, góm eða kinn og gefa frá sér xylitol (náttúrulega sykru) sem örvar munnvatnsflæði, kalsíum sem endurkalkar tennur og bíkarbónat sem hlutleysir sýrur í munninum.
Munnþurrkur er þegar munnurinn framleiðir ekki nægilegt munnvatn til að halda honum rökum og þægilegum.
Munnvatn gegnir ýmsum mikilvægum hlutverkum í líkamanum – það smyr munninn til að hindra núning, undirbýr fæðu fyrir kyngingu, byrjar fyrsta skref meltingar, hindrar bakteríur/sveppi og verndar tennur gegn sýrueyðingu og tannskemmdum.
Skortur á munnvatni getur því haft fjölþætt áhrif, bæði á munnheilsu og lífsgæði.
Afleiðingar munnþurrks
Þurr tilfinning í munni, slímhúðir loða saman og verða viðkvæmar Erfiðleikar við að kyngja og tala. Brennandi eða stingandi tilfinning í tungu eða góm.
- Tannkul
- Sveppasýkingar
- Tannskemmdir
- Tannholdsbólgur
- Sýkingar í munnvikjum
- Andremma
- Skert bragðskyn
- Sár í munni
Næturvernd
Munnþurrkur á nóttunni getur verið sérstaklega óþægilegur þar sem sumir vakna reglulega yfir nóttina til að bleyta munninn. Þetta hefur mjög slæm áhrif á svefngæði sem getur haft víðtæk áhrif á almenna heilsu einstaklinga.
XyliMelts eru hannaðar til að halda rakastigi stöðugu í svefni án þess að trufla þig. Þær loða mjúklega við góm og leysast upp hægt og örugglega á meðan þú sefur. Þetta hjálpar bæði til við að viðhalda svefngæðum en einnig til að forðast þynningu á slímhúð og varna gegn tannskemmdum.







