
Biotherm býður húðvörur fyrir allar húðgerðir og ættu flest að geta fundið vörur sem henta þeirra þörfum og lífsstíl. Aðal vörulínurnar eru Life Plankton™, Aquasource, Blue Therapy, Lait Corporel, Aquapower herra og Waterlover sólarvörur. Markmið Biotherm er að bjóða virkar, öruggar, umhverfisvænar og sjálfbærar vörur í umhverfisvænum pakkningum.
Allar umbúðir eru úr endurunnu efni og endurvinnanlegar að því marki sem hægt er og ekkert sellófan. Biotherm vinnur að og styrkir verndun sjávar og sjávarlífs i samvinnu við ýmsar stofnanir.