Kaupleiga á heyrnartækjum | Nýtt á Íslandi
Einföld leið að betri heyrn
Í Lyfju Heyrn bjóðum við nýja leið til að eignast heyrnartæki á einfaldan hátt. Við bjóðum mánaðarlegar afborganir af heyrnartækjum í allt að 48 mánuði. Í kaupleigusamningi er einnig innifalin þjónusta við keypt heyrnatæki, útskipti á mergsíum og hátölurum, ásamt ábyrgð á tækjunum og hleðslustöð.
Bókaðu tíma hjá Lyfju Heyrn hér að neðan í ítarlega heyrnarmælingu og við ráðleggjum þér með framhaldið.
Leiguverð
Leiguverð samanstendur af:
- Jafnri afborgun tækjanna
- Jafndreifðum 12% ársvöxtum
- Lágmarks þjónustugjald
Innifalin þjónusta
Innfalin þjónusta við kaup á heyrnartækjum með kaupleigu:
- Útskipti á mergsíum og hátölurum allt að 4x á ári
- Árleg endurkoma og endurstilling heyrnartækja
- Fjarþjónusta með myPhonak appi
- Aðgengi að fræðslu og ráðgjöf hjá sérþjálfuðu starfsfólki Lyfju Heyrnar
Ábyrgð
Fjögurra ára ábyrgð er á heyrnartækjum og tvö ár á hleðslustöð.
Kaupheimild
- Leigutaka er heimilit að kaupa upp tækin á samningstíma,
- Við uppkaup skal tekið mið af ógreiddu andvirði tækjanna. Greiddir vextir og þjónustukostnaður teljast fullgreiddir og endurgreiðast ekki. Uppkaupsverð reiknast þannig að frá heildarvirði tækjanna dragast þær greiðslur sem þegar hafa farið upp í andvirði þeirra.
Tækin teljast eign leigutaka um leið og leiga hefst og því er gert ráð fyrir að endurgreiðslu sjúkratrygginga er aðgengileg hafi viðskiptavinur rétt á henni.


















