
Birna Ásbjörnsdóttir fer yfir mikilvægi góðrar meltingarflóru og hvernig hún hefur áhrif á líkamlega og andlega líðan. Birna gefur einnig góð ráð til að bæta meltingarflóruna.
Birna G. Ásbjörnsdóttir stundar doktorsnám við læknadeild og matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Birna er með meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surreyháskóla og hefur lokið námi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum frá Oxfordháskóla.