Probiotic Complex inniheldur blöndu góðgerla ásamt Magnifood® blöndu úr frostþurrkuðum jurtum og plöntuefnum. Hylkin innihalda valda stofna góðgerla og henta sem viðbót við fjölbreytt mataræði. Varan er vegan og laus við fylliefni, bindiefni og önnur aukaefni.
Í dag vitum við að þarmaflóran skipar mjög mikilvægt hlutverk í heilbrigði og heilsu almennt og því er mikilvægt að hjálpa líkamanum að byggja upp vinveitta gerlaflóru í meltingarvegi. Það gerum við með því að taka inn góðgerla fyrir meltinguna, sem hafa ótal heilsubætandi áhrif og halda sveppasýkingum fjarri.
Það er ótal margt sem hefur slæm áhrif á gerlaflóru meltingarvegarinns. Þar má nefna inntöku sýklalyfja, streitu, óreglulegt og slæmt mataræði, mikla kaffidrykkju, áfengisneyslu og fleira.
Bæði börn og fullorðnir geta haft mikið gagn af að taka Probiotic Complex sem inniheldur bæði mikilvæga meltingargerla og jurtblöndu sem styður við gerlana.
Bætiefnið er hannað til að nýtast öllum, burtséð frá aldri ástandi og heilsu.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.