Aciclovir Alvogen
Lyfseðilsskylt
Aciclovir Alvogen er notað við veirusýkingum. Acíklóvír, virka efnið í lyfinu, hindrar myndun erfðaefnis herpesveira og stöðvar þannig fjölgun þeirra. Þegar veira er stöðvuð reynist ónæmiskerfi líkamans auðveldara að vinna á sýkingunni. Ónæmisbældir einstaklingar, t.d. alnæmissjúklingar, gætu þurft að nota lyfið til langs tíma því að þeir ná síður að vinna á veirunni. Lyfið hefur mest áhrif sé það strax notað í byrjun á sýkingu, eða á meðan veiran er ennþá að fjölga sér. Acíklóvír er notað við sýkingum af völdum herpesveira. Athugið að veiran er smitandi á meðan sár af völdum sýkingarinnar eru til staðar, líka þótt lyfið sé notað.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Já |
| Þvermál | 12 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 200 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir eftir inntöku lyfsins eru útbrot og koma fram hjá um 3% þeirra sem taka lyfið.
- Útbrot, kláðiLeitið til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
- Til inntöku:
Milliverkanir
Milliverkanir sem geta komið fram við inntöku (töflur) eru eftirfarandi:
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Já |
| Þvermál | 12 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 200 mg |








