Adempas (Abacus Medicine)

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Blóðþrýstingslækkandi lyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: RiociguatSkráð 15. júlí 2024

Adempas inniheldur virka efnið riociguat sem víkkar lungnaslagæðar (æðarnar sem tengja hjartað við lungun) og gerir þar með hjartanu auðveldara fyrir að dæla blóði um lungun. Adempas má nota handa sjúklingum með langvinnan lungnaháþrýsting vegna segareks sem ekki er hægt að laga með skurðaðgerð, eða eftir skurðaðgerð hjá sjúklingum með viðvarandi eða endurkominn hækkaðan blóðþrýsting í lungum. Adempas er einnig notað við tilteknum gerðum lungnaslagæðaháþrýstings, þ.e. lungnaslagæðaháþrýstingi af ókunnum orsökum, arfgengum lungnaslagæðaháþrýstingi og lungnaslagæðaháþrýstingi af völdum bandvefskvilla. Læknirinn mun athuga hvort lyfið hentar þér. Adempas má taka eitt sér eða ásamt öðrum lyfjum sem notuð eru til að meðhöndla lungnaslagæðaháþrýsting.

Tafla 2,5 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirRáðlagður upphafsskammtur er ein 1 mg tafla tekin 3 sinnum á dag í 2 vikur með eða án matar. Læknirinn mun auka skammtinn á 2 vikna fresti í að hámarki 2,5 mg 3 sinnum á dag nema þú finnir fyrir aukaverkunum eða fáir mjög lágan blóðþrýsting. Ef svo er mun læknirinn ávísa þér Adempas af hæsta skammti sem þér líður vel af.
Hversu langur tími uns verkun kemur framÞað getur tekið allt að 1-2 vikur að ná verkun áður en hugað er að hækkun á skammti.
VerkunartímiNokkrir dagar
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistEkki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka. Ef þú gleymir skammti skaltu taka næsta skammt samkvæmt áætlun.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta að taka töflurnar nema læknirinn hefur sagt til um það.
Ef tekinn er of stór skammturEf þú eða einhver annar tekur fleiri töflur en mælt er fyrir um, látið lækninn vita eða farið samstundis á sjúkrahús, taktu lyfjapakkningarnar með þér. Hafið samband við eitrunarmiðstöð LSH í síma 543 2222.
LangtímanotkunEngin þekkt alvarleg vandamál.

Aukaverkanir

Alvarlegustu aukaverkanirnar eru: Blóðhósti (algeng aukaverkun), bráð blæðing frá lungum sem getur valdið blóðhósta, banvæn tilvik komu fram (sjaldgæf aukaverkun). Ef þetta gerist skaltu hafa tafarlaust samband við lækninn þar sem þú þarft hugsanlega á bráðri læknismeðferð að halda.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Bjúgur
    Leitið til læknis
  • Blóðleysi
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttarónot
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi
    Leitið til læknis
  • Magabólga og ógleði
    Leitið til læknis
  • Uppköst, ógleði, kviðverkir og meltingatruflanir
    Leitið til læknis

Milliverkanir

Þú mátt ekki nota Adempas þú tekur lyf eða efni sem gefa frá sér köfnunarefnisoxíð (svo sem amýlnítrít) í hvaða formi sem er. Þetta á einnig við um „vellíðunarefni“ (svokallaða „poppers”). Ef þú reykir er þér ráðlagt að hætta þar sem reykingar geta dregið úr verkun þessara taflna. Láttu lækninn vita ef þú reykir eða hættir að reykja meðan á meðferð stendur.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með skerta lifrarstarfsemi
MeðgangaKonur á barneignaraldri verða að nota örugga getnaðarvörn meðan á meðferð með Adempas stendur.
BrjóstagjöfKonur sem hafa barn á brjósti eiga ekki að nota Adempas vegna hættu á alvarlegum aukaverkunum hjá börnunum. Hætta á brjóstagjöf meðan á meðferð með lyfinu stendur.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára og unglingum með líkamsþyngd undir 50 kg.
Eldra fólkSkammtar geta verið minni
AksturLyfið getur valdið svima. Óráðlegt er að aka bíl fyrr en áhrif lyfsins eru liðin hjá.
ÁfengiEkki unnt að útiloka að áfengi hafi áhrif.
Íþróttir.
AnnaðEf þú átt erfitt með að gleypa heila töflu skaltu ræða við lækninn um aðrar aðferðir til að taka Adempas. Mylja má töfluna og blanda henni við vatn eða mjúka fæðu, svo sem eplamauk, rétt áður en hún er tekin. Einungis sérfræðilæknar í lungnalækningum og hjartalækningum mega ávísa lyfinu.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.