Adrenalin Mylan

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Hjartasjúkdómalyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: AdrenalínSkráð 1. júní 2009

Adrenalín er efni sem er framleitt í nýrnahettum líkamans. Við áreynslu eða streitu losnar aukið magn af þessu boðefni og við finnum fyrir einkennum eins og hröðum hjartslætti, svita, ógleði, svima, erfiðleikum við öndun o.s.frv. Adrenalín er notað sem neyðarmeðferð við astma, hjartastopp eða bráðaofnæmi hjá einstaklingum með sögu um eða þekkta áhættu fyrir ofnæmi. Bráðaofnæmi getur komið til vegna fæðu, lyfja, áreynslu, skordýrabits og ýmislegs annars. Adrenalín hefur æðaþrengjandi áhrif, það vegur því upp á móti æðavíkkuninni sem getur leitt til blóðþrýstingslækkunar við ofnæmisviðbrögð. Adrenalín veldur auk þess slökun á sléttum vöðvum í lungnaberkjum og minnkar með því öndunarerfiðleika og andþrengsli af völdum bráðaofnæmis. Auk þess dregur adrenalín úr kláða, ofsabjúg og einkennum frá meltingar- og þvagfærum vegna ofnæmislosts.

Notkun á lyfjum

LyfjaformStungulyf, lausn.
Venjulegar skammtastærðirLyfið er ætlað til bráðameðferðar samkæmt meðferðarráðleggingum.
Hversu langur tími uns verkun kemur framVerkun lyfsins kemur nánast strax fram við notkun.
Verkunartími10-20 mín.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lausnin á að vera litarlaus og tær. Lyfið má ekki frjósa.
Ef skammtur gleymistLyfið er eingöngu notað í neyð vegna bráðaofnæmis og er ekki notað að staðaldri.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsLyfið er eingöngu notað í neyð og er ekki notað að staðaldri.
Ef tekinn er of stór skammturLeitaðu neyðarhjálpar þegar í stað. Of stórir skammtar eða röng gjöf lyfsins geta leitt til skyndilegrar hækkunar blóðþrýstings sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
LangtímanotkunLyfið er eingöngu notað í neyð og er ekki notað að staðaldri.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Fölvi, máttleysi
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi
    Leitið til læknis
  • Hraður hjartsláttur, skjálfti
    Leitið til læknis
  • Ógleði og uppköst
    Leitið til læknis
  • Óróleiki, kvíði, sviti
    Leitið til læknis
  • Öndunarerfiðleikar, hjartsláttartruflanir
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Adrenalín er venjulega gefið með mikilli varúð sjúklingum með hjartasjúkdóma. Adrenalín hemur seytingu insúlíns og hækkar því blóðsykur. Því getur reynst nauðsynlegt fyrir sykursjúka sem fá adrenalín að auka skammt af insúlíni eða öðrum sykursýkilyfjum.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gláku
  • þú sért með háþrýsting
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með æxli í nýrnahettum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með lág kalíumgildi í blóði
  • þú sért með há kalsíumgildi í blóði
  • þú sért með æxli í blöðruhálskirtli
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Lyfið á aðeins að nota á meðgöngu ef ávinningurinn er meiri en hugsanleg áhrif á fóstur.
BrjóstagjöfÁhrif á brjóstmylking eru ólíkleg.
BörnSkammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir. Viðkvæmara fyrir sumum aukaverkunum lyfsins.
AksturOfnæmisviðbrögðin sjálf og aukaverkanir lyfsins geta skert aksturshæfni. Ekki aka bíl eftir gjöf lyfsins.
ÁfengiEkki neyta áfengis meðan lyfið er notað.
ÍþróttirBannað í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.