Advagraf (Heilsa)
Lyf til ónæmisbælingar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Takrólímus
Markaðsleyfishafi: Astellas Pharma | Skráð: 24. júní, 2009
Advagraf er mjög öflugt ónæmisbælandi lyf, sem hefur það hlutverk að koma í veg fyrir að líkaminn hafni ígæddu líffæri. Eftir líffæraígræðslu (lifur eða nýra) reynir ónæmiskerfi líkamans að hafna nýju líffæri. Til að hindra höfnunina eftir ígræðsluna er nauðsynlegt að gefa ónæmisbælandi lyf ævilangt. Advagraf er notað til að stjórna ónæmissvörun líkamanns og gerir honum kleift að sætta sig við ígrætt líffæri. Virka efnið, takrólímus, hefur það hlutverk að hindra framleiðslu frumudrepandi eitilfruma sem bera meginábyrgð á höfnun líffæris við ígræðslu. Með því dregur Advagraf úr mætti varnarkerfi líkamans og því geta alvarlegir fylgikvillar fylgt í kjölfarið, eins og sýkingar ásamt mörgum aukaverkum.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Forðahylki til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru háðir einstaklingum og hvert ígrædda líffærið er. Lyfið er tekið einu sinni á dag að morgni á fastandi maga, eða a.m.k. 1 klst. fyrir eða 2-3 klst eftir máltíð. Forðahylkin gleypist heil með vatnsglasi strax eftir að þau eru tekin úr þynnunni.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan 2ja klst. frá inntöku.
Verkunartími:
Einstaklingsbundinn.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Forðast skal neyslu greipaldins og greipaldinsafa.
Geymsla:
Geymist í lokuðum, upprunalegum umbúðum við stofuhita, varið raka, þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafðu samband við lækni eða næstu bráðamóttöku tafarlaust.
Langtímanotkun:
Fylgjast þarf reglulega með líðan sjúklingsins og styrk lyfsins í blóði.
Aukaverkanir
Lyfið veikir varnakerfi líkamans til að hann hafni ekki ígrædda líffærinu og því verður varnamáttur líkamans til að verjast sýkingum ekki eins mikill. Aukaverkanir Advagrafs eru margar og listinn hér að neðan er ekki tæmandi. Eingöngu algengar aukaverkanir lyfsins eru taldar upp.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Blóðsykurs- og blóðkalíumhækkun | |||||||
Gula | |||||||
Hár eða lágur blóðþrýstingur, blæðingar | |||||||
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir | |||||||
Hósti, nefstífla | |||||||
Hraður hjartsláttur | |||||||
Höfuðverkur, skjálfti | |||||||
Krampar, truflanir á meðvitund, dofi, skyntruflanir, sundl og taugakvillar | |||||||
Kvíði, rugl, ráðleysi, þunglyndi, skaptruflanir, martröð, ofskynjanir, geðtruflanir | |||||||
Liðverkir, sinadráttur, verkir í útlimum og bakverkur | |||||||
Máttleysi, hiti, bjúgur, vanlíðan, verkir og þyngdaraukning | |||||||
Meltingartruflanir, hægðatregða, vindgangur, linar hægðir, uppþemba og þan. | |||||||
Minnkuð matarlyst | |||||||
Mæði, bólga í öndunarfærum | |||||||
Ógleði, uppköst, verkir í meltingarvegi og kvið | |||||||
Skalli, þrymlabólur og aukin svitamyndun | |||||||
Skert nýrnastarfsemi, óeðlileg þvaglát og einkenni frá þvagrás | |||||||
Suð fyrir eyrum | |||||||
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi | |||||||
Svefnörðugleikar | |||||||
Sýkingar | |||||||
Útbrot, kláði | |||||||
Þokusýn, ljósfælni og augnkvilli |
Milliverkanir
Advagraf umbrotnar í lifrinni fyrir tilstilli lifrarensíms sem hefur áhrif á mörg önnur lyf. Varast skal notkun náttúrulyfja, og þ.á.m. Jóhannesarjurtar og lyfið getur haft áhrif á virkni bólusetningar. Þau lyf sem geta haft örvandi, hamlandi eða möguleg áhrif á Advagraf eru talin upp hér að neðan.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
- Aclovir
- Activelle
- Adalat Oros
- Afipran
- Akynzeo
- Alkindi
- Alunbrig
- Alvofen Express
- Amiloride / HCT Alvogen
- Amló
- Amlodipin Bluefish
- Amlodipin Medical Valley
- Amlodipin Zentiva
- Amlodipine Vitabalans
- Aranesp
- Arcoxia
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Asubtela
- Azithromycin STADA
- Azitromicina Normon
- Azyter
- Candizol
- Candpress Comp
- Canesten
- Cardil
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Centyl med kaliumklorid
- Centyl mite med kaliumklorid
- Cerazette
- Cinacalcet STADA
- Cinacalcet WH
- Clarithromycin Alvogen
- Clarithromycin Krka
- Cleodette
- Clindamycin EQL Pharma
- Clopidogrel Actavis
- Clopidogrel Krka
- Cloxabix
- Cordarone
- Cotrim
- Coxerit
- Coxient
- Cozaar Comp
- Cozaar Comp Forte
- Cypretyl
- Dabigatran Etexilate Accord
- Dabigatran etexilate Krka
- Dalacin
- Darazíð
- Decortin H
- Depo-Medrol
- Desirett
- Diamicron Uno
- Diclomex
- Diflucan
- Diltiazem HCl Alvogen (áður Dilmin)
- Dimax Rapid
- Diprospan
- Dronedarone STADA
- Dronedarone Teva
- Emla
- Enalapril comp ratiopharm
- Enalapril HCTZ Medical Valley
- Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka
- Epidyolex
- Eplerenon Krka
- Eplerenone Alvogen
- Eplerenone Bluefish
- Esomeprazol Actavis
- Esomeprazol Krka
- Esomeprazol Krka (Heilsa)
- Esomeprazole Jubilant
- Etoricoxib Krka
- Eucreas
- Eusaprim
- Evorel Sequi
- Evra
- Exforge
- Florinef
- Fluconazol Krka
- Fluconazol ratiopharm (afskráð des 2022)
- Fungyn
- Furix
- Furosemide Kalceks
- Galvus
- Gaviscon
- Gaviscon (Heilsa)
- Gentamicin B. Braun
- Gestrina
- Gliclazíð Krka
- Glimeryl
- Glucophage
- Grepid
- Harmonet
- Hjartamagnýl
- Hydrokortison Orion
- Hydromed
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Idotrim
- Ikervis
- Imatinib Accord
- Imatinib Krka d.d.
- Impugan
- Inspra
- Isoptin Retard
- Janumet
- Januvia
- Januvia (Lyfjaver)
- Jaydess
- Jentadueto
- Kaleorid
- Kalíum Klórið
- Kaliumklorid Orifarm
- Kaliumklorid Orifarm (Lyfjaver)
- Kenacort-T
- Klacid
- Kliogest
- Kyleena
- Lansoprazol Krka
- Lederspan
- Levonorgestrel ABECE (Heilsa)
- Levonorgestrel Apofri
- Levosert
- Levosertone
- Lidbree
- Lidokain Mylan
- Lidokain-tetrakain - forskriftarlyf
- Lokelma
- Losartan/Hydrochlorothiazide Medical Valley
- Losartankalium/hydrochlorothiazid Krka
- Magical Mouthwash
- Magnesia medic
- Maxitrol
- Melleva
- Mercilon
- Metformin Bluefish
- Metformin EQL
- Metformin Sandoz
- Metformin Teva B.V.
- Microgyn
- Microstad
- Mirena
- Modifenac
- Multaq
- Mycofenolsýra Accord
- Myfenax
- Myfenax (Heilsa)
- Myfortic
- Mykofenolatmofetil Actavis
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Navelbine
- Nexium
- Nexium (Heilsa)
- Nexium (Lyfjaver)
- Nexplanon
- Norvasc
- Novofem
- NovoNorm
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- NuvaRing
- Omeprazol Actavis
- Omeprazol Alvogen (áður Omeprazol ratiopharm)
- Omeprazol Medical Valley
- Ornibel
- Parapró
- Paxlovid
- PEDIPPI
- Persantin
- Pioglitazone Actavis
- Plenadren
- Postinor
- Pradaxa
- Prednisolon - forskriftarlyf
- Prednisolon EQL Pharma
- Prednisolone Actavis
- Presmin Combo
- Primolut N
- Relifex
- Repaglinid Krka
- Rimactan
- Rivaroxaban WH
- Ryego
- Sandimmun Neoral
- Sitagliptin Krka
- Sitagliptin Sandoz
- Sitagliptin STADA
- Sitagliptin Teva
- Sitagliptin Zentiva
- Sitagliptin/Metformin Krka
- Sitagliptin/Metformin Medical Valley
- Sitagliptin/Metformin Sandoz
- Sitagliptin/Metformin Zentiva
- Solu-Cortef
- Solu-Medrol
- Spirix
- Spiron
- Sporanox
- Strefen
- Strefen (Heilsa)
- Strefen Apelsin (Heilsa)
- Strefen Honung & Citron
- Strefen Orange Sukkerfri
- Synjardy
- Tamoxifen Mylan
- Tavneos
- Tegretol
- Tegretol retard
- Tegretol Retard (Lyfjaver)
- Tibinide
- TNG-smyrsl
- Toradol
- Treo
- Treo Citrus
- Treo Hindbær
- Trimetoprim Meda
- Trisekvens
- Valablis
- Valaciclovir Actavis
- Valaciclovir Bluefish
- Valcyte
- Valganciclovir Medical Valley
- Valpress Comp
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka
- Valsartan Hydrochlorothiazide Krka (Heilsa)
- Valsartan Hydroklortiazid Jubilant
- Valtrex
- Veraloc Retard
- Vfend
- Vildagliptin/Metformin Krka
- Vinorelbin Actavis
- Vinorelbine Alvogen
- Voriconazole Accord
- Warfarin Teva
- Xarelto
- Xeljanz
- Xylocain
- Xylocain adrenalin
- Xylocain án rotvarnarefna
- Xylocain Dental Adrenalin
- Yasmin
- Yasmin 28
- Zitromax
- Zovirax
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Lyfið fer yfir fylgju. Meta þarf ávinning fyrir móður gagnvart hugsanlegri áhættu fyrir fóstrið.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og skal því ekki nota á meðan barn er haft á brjósti.
Börn:
Lyfið er venjulega ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólk:
Skammtar eru einstaklingsbundnir.
Akstur:
Lyfið getur valdið truflunum á sjón- og taugakerfi. Ef þú finnur fyrir svima, syfju eða þú átt í erfiðleikum með að sjá skýrt eftir notkun lyfsins skalt þú ekki aka bíl.
Áfengi:
Áfengi ætti ekki að nota á meðan meðferð stendur því það getur valdið truflunum á sjón- og taugakerfi.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Gæta skal sérstakrar varúðar við val á getnaðarvörn þar sem lyfið getur dregið úr úthreinsun getnaðarvarnalyfja. Hafir þú niðurgang lengur en í einn dag, skalt þú segja lækninum þínum frá því sem fyrst. Einnig skal forðast sólarljós og útfjólublátt ljós þar sem lyfið getur hugsanlega valdið illkynja húðbreytingum.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.