Alfuzosin hydrochlorid Alvogen

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum

Alfuzosin hydrochlorid Alvogen

Þvagfæralyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: AlfúzósínSkráð 1. desember 2012

Alfuzolin er notað við góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli. Góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli er algengur kvilli sem hrjáir eldri karlmenn og einkennist af erfiðleikum við þvaglát, svo sem þvagtregðu, tíðum þvaglátum og þvagleka. Þessi einkenni eru háð stærð blöðruhálskirtilsins og líka vöðvaspennu sem myndast í neðri þvagvegum. Alfúzósín, virka efni lyfsins, slakar á vöðvaspennunni með því að blokka svonefnd alfa-viðtæki í líkamanum, sérstaklega í blöðrubotni, þvagrás og blöðruhálskirtli, með þeim afleiðingum að þvagflæðið eykst. Lyfið dregur hins vegar ekki úr stækkun blöðruhálskirtilsins. Alfúzósín er gefið sjúklingum tímabundið sem bíða aðgerðar vegna stækkunar á blöðruhálskirtli eða þeim sem geta síður farið í slíkar aðgerðir. Athugið að lyfið getur í einstaka tilfellum valdið yfirliði, sérstaklega í upphafi meðferðar.

Tafla 10 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformForðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir10 mg á dag. Forðatöflurnar gleypist heilar eftir sömu máltíð á hverjum degi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMisjafnt eftir ástandi sjúklings.
VerkunartímiAllt að 24 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni, svo sem svima eða yfirlið, skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunReglulegt eftirlit er nauðsynlegt. Fylgjast skal vel með blóðþrýstingi hjá sjúklingum sem að auki taka blóðþrýstingslækkandi lyf.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er svimi og kemur fram hjá um 5% þeirra sem taka lyfið.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Höfuðverkur, svimi, þreyta
    Leitið til læknis
  • Lofthræðsla
    Leitið til læknis
  • Ógleði, kviðverkir, niðurgangur, munnþurrkur
    Leitið til læknis
  • Réttstöðuþrýstingsfall, yfirlið
    Leitið til læknis
  • Þróttleysi, lasleiki
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Hraður hjartsláttur, brjóstverkur
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði og bjúgur
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Alfúzósín má ekki taka samtímis öðrum alfa-viðtækjablokkandi lyfjum, eins og sumum hjartalyfjum og öðrum lyfjum sem notuð eru við góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli. Sérstakrar varúðar skal gæta hjá sjúklingum sem eru á blóðþrýstingslækkandi lyfjum.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • þú sért með blóðþrýstingsvandamál
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið er ekki ætlað konum.
BrjóstagjöfLyfið er ekki ætlað konum.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svima og skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÆskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.