Alprazolam WH
Lyfseðilsskylt
Alprazolam WH, sem inniheldur virka efnið alprazólam, tilheyrir flokki lyfja sem kallast benzódíazepín. Lyf í þessum flokki hafa öll sama verkunarmáta, þau auka áhrif hamlandi taugaboðefnis (GABA) á vissum stöðum í heila. Þau hafa öll róandi, kvíðastillandi, krampastillandi og vöðvaslakandi áhrif. Munur á benzódíazepínlyfjum felst í því hversu sérhæfð þau eru og verkunartími þeirra. Alprazólam virðist vera meira kvíðastillandi en önnur benzódíazepín. Það slær fljótt á kvíða og veldur að öllu jöfnu ekki sljóleika. Þol myndast yfirleitt við róandi áhrifum lyfsins en síður við kvíðastillandi áhrifum þess. Alprazólam raskar að einhverju leyti eðlilegu svefnmynstri á þá leið að draumsvefn minnkar hlutfallslega. Þetta er skammtaháð, röskunin verður meiri eftir því sem teknir eru stærri skammtar. Lyfið er notað til að meðhöndla kvíðaeinkenni hjá fullorðnum.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Bleikur | Bleikur |
| Áletrun | G | AL 0.5 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Lögun | Sporöskjulaga |
| Deilistrik | Já |
| Lengd | 9 mm |
| Breidd | 5,5 mm |
| Þykkt | 3,5 mm |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 0,5 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Sljóleiki kemur fram hjá um 30% sjúklinga í upphafi meðferðar, en dvínar vanalega eftir nokkra daga.
- SljóleikiLeitið til læknis
- Ósamhæfðar hreyfingarLeitið til læknis
- Skapgerðarbreytingar, ofskynjanirLeitið til læknis
- Útbrot, kláðiLeitið til læknis
- ÖndunarbælingLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Alprazólam getur haft áhrif á getnaðarvarnarlyf til inntöku. Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta dregið úr virkni lyfsins. Öll lyf sem hafa sljóvgandi áhrif á miðtaugakerfið geta aukið sljóvgandi áhrif alprazólams og ætti því að forðast að taka þau samtímis.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum








