Alutard SQ, vallarfoxgras

Ofnæmisvakar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Ofnæmisvaka extrakt

Markaðsleyfishafi: ALK-Abelló | Skráð: 1. júlí, 1999

Þegar ofnæmisvaldur berst til líkamans með snertingu fer af stað flókið ferli í líkamanum með ofnæmisviðbrögðum og tilheyrandi ofnæmiseinkennum. Fyrir þá sem eru haldnir miklu ofnæmi, orsakavaldurinn er þekktur og ofnæmið háir verulega viðkomandi, er ákveðin meðferð reynd sem kallast afnæmingarmeðferð. Alutard SQ, vallarfoxgras inniheldur hreinsuð ofnæmisvaka extrökt sem eru notuð við meðferð á ofnæmi við grasfrjó. Meðferðin felst í því að gefa ofnæmisvakann með vissu millibili yfir ákveðið tímabil, í nokkur ár, í von um að líkaminn aðlagist og hætti að sýna viðbrögð við ofnæmisvakanum. Afnæmingarmeðferðin á alltaf að vera í höndum sérfræðinga í ofnæmis- og ónæmislækningum, enda er ekki farið út í hana nema brýna nauðsyn beri til.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf undir húð.

Venjulegar skammtastærðir:
Meðferðin er í höndum sérfræðinga í ofnæmis- og ónæmislækningum sem ákveða skammtastærðir.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Einstaklingsbundið.

Verkunartími:
Einstaklingsbundinn.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Forðast skal þungar máltíðir á innspýtingardegi.

Geymsla:
Geymist á köldum stað (2-8°C) í upprunalegum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymsluþol lyfsins eftir opnun er 6 mánuðir. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Á ekki við.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Virkni lyfsins byggist á langtímanotkun.


Aukaverkanir

Fyrstu aukaverkanirnar geta komið fram á fyrstu 30 mín. Aukaverkanirnar geta verið að koma fram í allt að 24 tíma eftir innspýtingu. Aukaverkanirnar tengjast yfirleitt virkni lyfsins þar sem verið er að virkja vissa þætti ónæmiskerfisins.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólga í húð          
Hnúðar undir húð á stungustað          
Kláði í lófum og iljum      
Mikill kláði í húð        
Soghljóð við öndun, þrengsli fyrir brjósti        
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þreyta          
Þroti, roði og kláði á stungustað          

Milliverkanir

Samtímis notkun lyfja við ofnæmi geta haft áhrif á þol sjúklingsins. Aðra ofnæmisvaka, t.d. stífkrampa, ætti ekki að gefa fyrr en minnst viku eftir gjöf Alutard SQ nema brýna nauðsyn beri til.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með lungnasjúkdóm
  • þú sért með nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir gleymt að taka inn ofnæmislyf
  • þú sért með hita eða sýkingu

Meðganga:
Ekki má hefja meðferð á meðgöngu. Ef þungun á sér stað á meðan meðferð stendur þá má halda henni áfram.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Venjulegar skammtastærðir.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið þreytu. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Forðast skal neyslu áfengis á innspýtingardegi.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Forðast skal erfiðar æfingar og heita sturtu á innspýtingardegi.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.