Amdex

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Örvandi lyf og lyf sem efla heilastarfsemi

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: LisdexamfetaminSkráð 1. september 2026

Amdex inniheldur virka efnið lísdexamfetamín og er notað í meðferð við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD) hjá fullorðnum. Lyfið er líka ætlað börnum, 6 til 18 ára, sem hafa áður fengið meðferð með metýlfenidati sem hefur ekki virkað sem skyldi gegn ADHD. Lyfið er hluti af alhliða meðferðaráætlun við ADHD. Áhrif lyfsins eru fyrst og fremst á miðtaugakerfið þar sem það eykur athygli, einbeitingu og sjálfstraust, en minnkar þreytutilfinningu. Vellíðan og aukin afköst fylgja oft töku lyfsins. Amdex er langverkandi lyf sem virkar smám saman á 13 klukkustunda tímabili.

Notkun á lyfjum

LyfjaformHylki til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirAlgengur upphafsskammtur er 30 mg á dag. Hámarksskammtur er 70 mg á dag. Hylkin tekin inn að morgni, með vatnsglasi. Ef þú getur ekki eða átt erfitt með að gleypa hylki getur þú opnað hylkið og tæmt innihaldið í mjúka fæðu eins og jógúrt eða blandað við vatn eða appelsínusafa. Lyfið skal taka inn strax eftir blöndun, ekki geyma það.
Hversu langur tími uns verkun kemur framGetur verið einstaklingsbundið.
VerkunartímiUm eða að minnsta kosti 13 klukkustundir.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðLyfið má taka með eða án matar. Próteinríkt fæði og matvæli sem hafa áhrif á sýrustig þvags geta haft áhrif á verkun lyfsins.
GeymslaGeymið þar sem börn ná hvorki til né sjá.
Ef skammtur gleymistEkki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem hefur gleymst. Ef þú gleymir skammti skaltu bíða til næsta dags. Forðastu að taka lyfið síðdegis vegna möguleika á svefntruflunum (svefnleysi).
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEf þú hættir að taka lyfið geta ADHD-einkenni komið aftur. Ekki hætta að taka lyfið án samráðs við lækninn. Þú skalt ekki hætta skyndilega að taka lyfið á eigin spýtur.
Ef tekinn er of stór skammturEf of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal strax hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Segðu hversu mikið þú tókst af lyfinu.
LangtímanotkunLyfið gæti verið notað til lengri tíma. Fylgjast skal reglulega með ávinningi meðferðarinnar. Læknir gæti stöðvað meðferð í stuttan tíma til að meta hvort þú þurfir enn lyfið.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir hjá fullorðnum eru minnkuð matarlyst, svefnleysi, munnþurrkur eða höfuðverkur.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Æsingur, kvíði, skjálfti, sundl
  • Aukin svitamyndun
  • Hár blóðþrýstingur
  • Höfuðverkur
  • Lystarleysi, þyngdartap
  • Minnkuð kynhvöt
  • Munnþurrkur
  • Ógleði, niðurgangur og hægðatregða
  • Svefnleysi
  • Geðsveiflur
    Leitið til læknis
  • Brjóstverkur, hjartsláttarónot, hraður hjartsláttur
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Þunglyndi
  • Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis
Aukaverkanir með óþekkta tíðni:
  • Geðrofslotur
    Leitið til læknis
  • Krampar eða flog
    Leitið til læknis

Milliverkanir

Þú mátt ekki taka Amdex ef þú tekur lyf sem er MAO-hemill. Amdex og sum önnur lyf geta haft áhrif á hvert annað. Listinn hér fyrir neðan er ekki tæmandi.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • hvort þú sért með gláku
  • hvort þú hafir einhvern tíma átt við geðræn vandamál að stríða
  • þú hafir einhvern tíma misnotað lyf eða áfengi
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
  • þú sért með skjaldkirtilssjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun eða hvort þú ráðgerir að verða þunguð
  • þú ert að taka, eða hefur tekið á síðustu 14 dögum, annað lyf sem er MAO-hemill
  • þú finnur fyrir óvenjulegum spenningi, ofvirkni eða hömluleysi
MeðgangaÞú skalt ekki nota lyfið á meðgöngu nema læknirinn hafi sérstaklega ráðlagt þér það.
BrjóstagjöfKonur sem hafa barn á brjósti eiga ekki að nota Amdex.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólkAldraðir geta verið með hægari útskilnað, því getur þurft að breyta skömmtum svo verkun verði ekki of mikil.
AksturÞú gætir fundið fyrir sundli, átt erfitt með sjónskerpu eða verið með óskýra sjón þegar þú tekur Elvanse Adult. Ekki aka bifreið ef þú finnur fyrir þessum einkennum. Hver og einn verður að leggja mat á getu sína til aksturs og starfa sem krefjast óskertrar árvekni.
ÁfengiTakmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um hugsanlegar milliverkanir við áfengi.
ÍþróttirBannað í keppni. Lyfið getur gefið jákvæða niðurstöðu á lyfjaprófi. Þetta á við um próf sem notuð eru í íþróttum.
FíknarvandamálLyfið getur komið fram á fíkniefnaprófum. Lyfið hentar ekki fyrir einstaklinga með sögu um fíknisjúkdóma.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.