Amorolfin Alvogen

Sveppalyf við húðsjúkdómum | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Amorolfín

Markaðsleyfishafi: Alvogen | Skráð: 1. maí, 2020

Amorolfin Alvogen er sveppalyf. Virka efnið í lyfinu, amorolfín, hemur eða drepur sveppi með því að hindra sterólmyndun í frumuhimnu, en hún er sveppum lífsnauðsynleg. Amorolfín vinnur á margar sveppategundir sem valda sýkingum í húð eða nöglum. Í kremgrunninum smýgur amorolfín fljótt inn í neðri húðlögin, í lakkgrunninum smýgur það inn í nöglina og að naglbeðinum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis lakk á neglur.

Venjulegar skammtastærðir:
Borið á sýktar neglur 1-2svar í viku í nokkra mánuði.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir staðsetningu sýkingarinnar og næmi sveppa fyrir lyfinu.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um. Lakkið skal nota þar til sýktu neglurnar hafa vaxið alveg fram og eru heilbrigðar. Það tekur venjulega 6 mánuði fyrir fingurneglur og 9-12 mánuði fyrir táneglur.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef barn notar lyfið eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Útbrot, mikill kláði og brunatilfinning          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Þegar Amorolfin er notað skaltu forðast að nota naglalakk og gervineglur. Einnig skaltu passa það að afklipptar og sýktar neglur komist ekki í snertingu við heilbrigðar neglur.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.