Aromasin

Lyf með verkun á innkirtla | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Exemestan

Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. júní, 2001

Aromasin tilheyrir flokki krabbameinslyfja sem hafa letjandi áhrif á verkun ensíma í líkamanum. Ensím örva framleiðslu á hinum ýmsu efnum sem líkaminn framleiðir, og þar á meðal estradíól. Virka efnið exemestan dregur úr myndun estradíóls með því að hindra óafturkræft ensímkerfi sem nefnist arómata ensímsamstæðan. Það að lækka styrk estradíóls í blóði hefur jákvæð áhrif á brjóstakrabbamein. Aromasin er ætlað konum eftir tíðahvörf.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
25 mg einu sinni á dag, helst eftir máltíð.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið nær hámarksstyrk í blóði innan 1-2ja klst.

Verkunartími:
1 dagur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Fylgjast þarf reglulega með lifrarstarfsemi.


Aukaverkanir

Margar aukaverkanir sem verður vart þegar lyfið er tekið má rekja til undirliggjandi sjúkdóms eða eðlilegra afleiðinga estrógenskorts.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin svitamyndun          
Bjúgur í útlimum          
Hárlos          
Hitakóf          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Lystarleysi          
Meltingartruflanir, hægðatregða og niðurgangur          
Ógleði, uppköst, kviðverkir          
Útbrot          
Verkir          
Þunglyndi, svefnleysi          
Beingisnun, beinbrot          

Milliverkanir

Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Lyfið er ætlað konum eftir tíðahvörf.

Brjóstagjöf:
Lyfið er ekki ætlað konum með barn á brjósti.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og sljóleika. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.