Atorvastatin Xiromed

Blóðfitulækkandi lyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Atorvastatín

Markaðsleyfishafi: Medical Valley | Skráð: 1. janúar, 2018

Atorvastatín, virka efnið í lyfinu, hefur blóðfitulækkandi áhrif. Það tilheyrir flokki lyfja sem hindrar myndun á kólesteróli í lifur og veldur því að kólesteról og fita í blóði minnkar. Lyfið er gefið sjúklingum sem hafa mikið kólesteról í blóði þegar breytingar á mataræði og hreyfingu hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Halda á áfram að borða kólesterólsnautt fæði meðan á meðferð með atorvastatíni stendur. Lyfið hefur einnig sýnt árangur í þá veru að lækka kólesteról hjá sjúklingum með arfhreina (homozygot), ættgenga kólesterólhækkun. Atorvastatin er líka notað til að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma hjá einstaklingum sem eru í hættu á að fá hjartaáfall.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
10-80 mg í senn einu sinni á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 2-4 vikur.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Minni fituneysla er hluti af meðferðinni. Greipaldinsafi getur haft áhrif á niðurbrot lyfsins í líkamanum, og því er óæskilegt að neyta greipaldinsafa á meðan lyfið er tekið.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Notkun lyfsins í lengri tíma getur haft áhrif á lifrarstarfsemi. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með lifrarstarfsemi og vöðvastyrk á meðan lyfið er tekið.


Aukaverkanir

Lyfið þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir eru almennt vægar og ganga yfir við áframhaldandi töku lyfsins.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Blóðnasir          
Bólga í nefi          
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur, ógleði          
Niðurgangur, hægðatregða og meltingartruflanir          
Útbrot, kláði          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkir, eymsli og máttleysi í vöðvum        
Verkur fyrir brjósti        
Vindgangur          
Vöðvakrampar          
Vöðvaverkir, liðverkir          
Verkir í koki og barkakýli          
Bakverkir, liðbólga          
Of hár blóðsykur          

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með vanvirkan skjaldkirtil
  • þú hafir einhvern tíma átt við áfengisvandamál að stríða
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með vöðvakvilla (myopathy)

Meðganga:
Lyfið getur valdið fósturskemmdum og því á ekki að nota það á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur hverfandi áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Getur aukið líkur á lifrarvandamálum. Gæta ætti hófsemi í áfengisdrykkju.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.