Azarga
Glákulyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Brinzólamíð Tímólól
Markaðsleyfishafi: Alcon Laboratories | Skráð: 1. október, 2009
Azarga er notað við gláku. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu augnvökva og frárennslis hans þannig að vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði um þær minnkað. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundir, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Mismunandi lyf geta átt við eftir því um hvora tegundina er að ræða. Azarga er notað við gleiðhornsgláku og inniheldur tvö virk efni, brínzólamíð og tímólól. Þau lækka bæði augnþrýsting með því að draga úr framleiðslu augnvökva, en gera það hvort með sínum hætti. Með því að nota þessi tvö virku efni saman eins og hér er gert má ná fram enn frekari lækkun á augnþrýstingi og er lyfið því notað við gláku þegar meðferð með tímólól eingöngu hefur ekki borið fullnægjandi árangur.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Augndropar.
Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í auga 2svar á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
15-20 mín.
Verkunartími:
12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita og varið ljósi, þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Fylgjast þarf reglulega með augnþrýstingi til að meta áhrif lyfsins. Einnig getur þurft að fylgjast með aukaverkunum þess, sérstaklega hvort það hefur áhrif á hjarta.
Aukaverkanir
.
Milliverkanir
.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Alutard SQ, birkifrjo
- Alutard SQ, derm. pter.
- Alutard SQ, hundahar
- Alutard SQ, kattahar
- Alutard SQ, vallarfoxgras
- Arzotilol
- Bricanyl (afskráð apríl 2020)
- Bricanyl Turbuhaler
- Cordarone
- Cosopt sine
- Diamox
- Dorzolamide Alvogen
- Dorzolamide/Timolol Alvogen
- Duokopt
- Grazax 75.000 SQ-T
- Isoptin Retard
- Salmeterol/Fluticasone Neutec
- Salmex
- Seretide
- Serevent
- Soluprick SQ ALK108 - Birkifrjó
- Soluprick SQ ALK225 - Vallarfoxgras
- Soluprick SQ ALK504 - Rykmaur
- Soluprick SQ ALK552 - Hrossaværur
- Soluprick SQ ALK553 - Hundahár
- Soluprick SQ ALK555 - Kattahár
- Veraloc Retard
Getur haft áhrif á
- Adalat Oros
- Adrenalin Mylan
- Alvofen Express
- Amló
- Amlodipin Bluefish
- Amlodipin Medical Valley
- Amlodipine Vitabalans
- Arcoxia
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Atectura Breezhaler
- Atenolol Mylan
- Bisbetol
- Bisoprolol Medical Valley
- Bloxazoc
- Bricanyl (afskráð apríl 2020)
- Bricanyl Turbuhaler
- Bufomix Easyhaler
- Carbocain adrenalin
- Cardil
- Catapresan (Undanþágulyf)
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- Cloxabix
- Cordarone
- Coxerit
- Coxient
- Diclomex
- Diltiazem HCl Alvogen (áður Dilmin)
- Dimax Rapid
- DuoResp Spiromax
- Emla
- Enerzair Breezhaler
- EpiPen
- EpiPen Junior
- Etoricoxib Krka
- Euthyrox
- Exforge
- Felodipin Alvogen
- Flecainid STADA (Afskráð sept 2020)
- Flúoxetín Actavis
- Fluoxetin Mylan
- Fluoxetin WH
- Fluoxetine Vitabalans
- Flutiform
- Fontex
- Íbúfen
- Ibuprofen Bril (Afskráð feb 2023)
- Ibutrix
- Ibuxin (afskráð des 2022)
- ibuxin rapid
- Isoptin Retard
- Jext
- Levaxin
- Lidokain Mylan
- Lidokain-tetrakain - forskriftarlyf
- Logimax
- Logimax forte
- Magical Mouthwash
- Marcain adrenalin
- Metoprolin (Afskáð feb 2023)
- Metoprolol Alvogen
- Metoprololsuccinat Hexal
- Modifenac
- Naproxen Mylan
- Naproxen-E Mylan
- Norvasc
- NovoNorm
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Onbrez Breezhaler
- Orudis
- Oxis Turbuhaler
- Parapró
- Paxetin
- Pranolol
- Propranolol hydrochloride
- Relifex
- Repaglinid Krka
- Rinexin
- Salmeterol/Fluticasone Neutec
- Salmex
- Seloken
- Seloken ZOC
- Seretide
- Serevent
- Seroxat
- Sotalol Mylan
- Spiolto Respimat
- Sporanox
- Striverdi Respimat
- Symbicort forte Turbuhaler
- Symbicort mite Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler
- Symbicort Turbuhaler (Lyfjaver)
- Tambocor
- Terbinafin Actavis
- Terbinafin Medical Valley
- Toradol
- Trandate
- Ventoline
- Veraloc Retard
- Voltafenak Rapid (afskráð sept 2022)
- Xylocain
- Xylocain adrenalin
- Xylocain án rotvarnarefna
- Xylocain Dental Adrenalin
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.