Bactroban
Sýklalyf húðlyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Múpírócín
Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline | Skráð: 1. júlí, 1994
Bactroban er sýklalyf, ætlað til staðbundinnar notkunar á húð í skamman tíma. Virka efnið í lyfinu, múpírócín, hindrar próteinframleiðslu baktería. Ónæmismyndun er sjaldséð ef lyfið er notað samkvæmt leiðbeiningum. Engin merki um óþol hafa komið fram.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Útvortis smyrsli.
Venjulegar skammtastærðir:
Borið á sýkt húðsvæði í þunnu lagi 2-3svar á dag í allt að 10 daga.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið frásogast vel um sjúka húð, því fæst verkun eftir skamman tíma. Frásog múpírócíns í gegnum óskaddaða og heilbrigða slímhúð er hverfandi.
Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfjameðferðin skal ekki standa lengur en í 10 daga, þá er meðferð hætt.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulegir skammtar ættu ekki að skapa vanda. Ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Sviði, erting í húð | ![]() |
![]() |
|||||
Útbrot og mikill kláði | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Venjulegar skammtastærðir.
Eldra fólk:
Gæta þarf varúðar hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.