Bloxazoc

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Beta-blokkar

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MetóprólólSkráð 1. maí 2017

Bloxazoc tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkarar. Lyf í honum hindra áhrif boðefnanna adrenalíns og noradrenalíns á ýmis líffæri, t.d. hjarta og æðar. Beta-blokkarar skiptast í undirflokka eftir eiginleikum sínum, hvort þeir hafi sérhæfð áhrif á hjarta eða komist í miðtaugakerfið eða ekki. Virka efnið metóprólól hefur tiltölulega sérhæfð áhrif á hjartavöðva þar sem það dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjartsláttartíðni. Vegna sérhæfni sinnar hefur það færri aukaverkanir en ósérhæfðir beta-blokkarar, það hefur t.d. lítil áhrif á lungu og astmasjúklingar þola það betur. Lyfið er notað við háþrýstingi, hjartaöng, hjartsláttartruflunum, hjartsláttarónotum, stöðugri hjartabilun og til að fyrirbyggja hjartadrep vegna kransæðastíflu. Metóprólól berst til miðtaugakerfisins og getur komið að gagni sem fyrirbyggjandi lyf við mígreni.

Tafla 25 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformForðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir12,5-200 mg einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi. Má skipta þeim í tvennt en hvorki tyggja þær né mylja.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 1 klst.
Verkunartími24 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSjúkdómur getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Ekki má hætta skyndilega.
Ef tekinn er of stór skammturHafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef vart verður við öndunarerfiðleika eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.
LangtímanotkunÁn vandkvæða.

Aukaverkanir

Aukaverkanir eru tíðari eftir því sem skammtar eru stærri. Almennt finna um 10% þeirra sem taka lyfið fyrir einhverjum aukaverkunum.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Hand- eða fótkuldi
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi, þreyta
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir, niðurgangur og hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Mæði við áreynslu
    Leitið til læknis
  • Ógleði
    Leitið til læknis
  • Svimi þegar staðið er upp
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur
    Leitið strax til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Bjúgur
    Leitið til læknis
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Skapgerðarbreytingar
    Leitið til læknis
  • Útbrot, kláði
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Verkur fyrir brjósti, mæði
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Sé lyfið tekið með öðrum blóðþrýstingslækkandi lyfjum geta áhrif þeirra magnast. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun
  • lítið blóðflæði sé til útlima (kemur fram sem hand- eða fótkuldi)
  • þú sért með astma eða annan lungnasjúkdóm
  • þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaNokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiGetur aukið áhrif metóprólóls á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirNotkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.