Candpress
Lyfseðilsskylt
Candpress inniheldur virka efnið candesartan. Það er hjartalyf sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast angíótensín II blokkar. Það hindrar áhrif angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Candesartan lækkar því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Candpress er notað við of háum blóðþrýstingi og til meðferðar hjá sjúklingum með hjartabilun. Þegar þörf er á mikilli lækkun blóðþrýstings er lyfið gefið með þvagræsilyfjum, t.d. hýdróklórtíazíði. Candesartan veldur færri aukaverkunum en þau lyf sem hindra myndun angíótensíns II og það þolist yfirleitt betur.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | C8 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Deilistrik | Já |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 8 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Aukaverkanir lyfsins eru almennt vægar og ganga yfir þegar líður á meðferðina. Rannsóknir sýna að þessi einkenni eru álíka mikil og hjá einstaklingum sem ekki taka lyfið.
- Höfuðverkur, svimiLeitið til læknis
- Lágur blóðþrýstingurLeitið til læknis
- Sýkingar í efri öndunarfærumLeitið til læknis
- GulaLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Fylgjast þarf vel með kalíumþéttni í blóði hjá þeim sjúklingum sem fá candesartan og taka kalíumsparandi þvagræsilyf eða kalíum inn aukalega. Það sama á við um önnur lyf sem geta aukið kalíum í blóði. Einnig er æskilegt að fylgjast með styrk litíums í blóði við samtímis notkun candesartans og litíumsalta. Önnur blóðþrýstingslækkandi lyf geta aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif candesartans.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með aðra hjartasjúkdóma
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir nýlega fengið mikinn niðurgang eða uppköst
- þú takir einhver önnur lyf

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | C8 |
| Gerð | Tafla |
|---|---|
| Deilistrik | Já |
| Grunnlögun | Kúpt |
| Styrkur | 8 mg |








