Canesten

Sveppalyf við húðsjúkdómum | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Klótrímazól

Markaðsleyfishafi: Bayer | Skráð: 1. desember, 1982

Klótrímazól, virka efnið í Canesten, hefur sveppadrepandi verkun. Það verkar á sveppategundir sem eru algengastar að valda sýkingum í húð og í leggöngum. Klótrímazól hefur einnig áhrif á nokkrar tegundir baktería. Canesten er bæði notað við sveppasýkingum í húð og á kynfærum en hefur ekki áhrif á sveppasýkingar undir nöglum eða í hársverði.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis krem, legkrem og legtafla.

Venjulegar skammtastærðir:
Krem: Borið á sýkt húðsvæði í þunnu lagi 2-3svar á dag. Til að fyrirbyggja endursýkingu þarf að halda meðferð áfram í 1-2 vikur eftir að einkenni sýkingar eru horfin. Legkrem: Borið á sýkt svæði 2-3svar á dag í 1-2 vikur. Legtöflur: 1 legtafla (500 mg) í eitt skipti að kvöldi eða 1 legtafla (100 mg) í senn 6 kvöld í röð. Þegar um sveppasýkingu í leggöngum er að ræða er ráðlegt að meðhöndla getnaðarlim maka samtímis með kremi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar strax að virka en einkenni sýkingar geta þó varað í einhvern tíma eftir að byrjað er að nota lyfið.

Verkunartími:
Allt að 12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er aðeins notað í tiltekinn tíma við tilfallandi sýkingu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Klótrímazól er aðeins ætlað við tilfallandi sýkingum.


Aukaverkanir

Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru teknar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun

Meðganga:
Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki nota lyfið á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk. Notið aðeins í samráði við lækni.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára og aðeins ætlað börnum 12 - 15 ára með læknisráði.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Efni í Canesten legkremi og legtöflu geta minnkað öryggi smokka, hettu og sæðisdrepandi krems.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.