Capsina

Staðdeyfilyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Capsaicín

Markaðsleyfishafi: Bioglan | Skráð: 1. júní, 1998

Capsina er staðdeyfandi lyf og er notað við einkennum taugaverkja í tengslum við sykursýki og fylgikvilla ristils. Verkunarmáti capsaicín er ekki að fullu þekktur. Rannsóknir hafa þó sýnt að capsaicín hefur sértæk verkjastillandi áhrif við staðbundna meðferð.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis krem.

Venjulegar skammtastærðir:
Kremið er borið á húð 3-4 sinnum á dag. Hendur skal þvo eftir notkun.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Getur tekið allt að 1-2 vikur við reglubundna notkun.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið svo lengi sem læknir segir fyrir um. Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar notkun lyfsins er hætt.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru mjög stórir skammtar, ef barn notar lyfið eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Endurmeta skal meðferðina eftir 2-3 mánuði.


Aukaverkanir

Stað- og tímabundin hita- eða brunatilfinning í húð á sérstaklega við ef kremið er borið á sjaldnar en 3-4 sinnum á dag. Hósti, kvef og öndunarerfiðleikar geta komið fram ef kremið hefur fengið að þorna á húðinni og þannig borist með andrúmsloftinu í öndunarveginn.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Tímabundin hita- eða brunatilfinning í húð          
Öndunarerfiðleikar        

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulega skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Lyfið má ekki bera á skaddaða eða bólgna húð. Forðast ætti notkun á heitum bökstrum meðan verið er að nota Capsina, einnig ætti að forðast að fara í heitt bað eða sturtu strax eftir notkun.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.