Carbocain

Staðdeyfilyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Mepívakaín

Markaðsleyfishafi: Astra Zeneca | Skráð: 1. febrúar, 2003

Carbocain er notað til staðdeyfingar hvort heldur sem er staðbundin-, sem leiðslu- eða utanbasts (epidural) deyfing. Lyfið inniheldur ekki æðaþrengjandi efni. Staðdeyfilyf verka með því að hindra myndun og flutning taugaboða um taugar og taugaenda. Almennt gildir um staðdeyfilyf að sársauki hverfur áður en tilfinning og hreyfigeta hverfa en það er háð lyfinu sem er notað og hvar það er gefið. Mepívakaín verkar fljótt og vel og hefur lága tíðni eiturverkunar.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf.

Venjulegar skammtastærðir:
Læknir metur skammtastærðir út frá gerð deyfingar og líkamsástandi sjúklings.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Nákvæmur tími er óþekktur en venjulega eru þetta einhverjar mínútur.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er ekki notað að staðaldri.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er ekki notað að staðaldri.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Hafa skal samband við lækni og hætta gjöf staðdeyfilyfsins strax. Meðferð fer eftir einkennum. Sé lyfinu dælt í æð vegna slysni koma eiturverkanir fram eftir 1-3 mín. Við ofskömmtun næst hámarksþéttni eftir 20-30 mín. Þá má einkum vænta einkenna ofskömmtunar frá miðtaugakerfi og hjarta- og æðakerfi.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki notað að staðaldri.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Breytt húðskyn          
Hjartsláttartruflanir, hjartastopp      
Hægur hjartsláttur, breyting á blóðþrýstingi          
Meðvitundarleysi og krampar      
Ógleði, uppköst, sundl          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki nota nein lyf á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu nema í samráði við lækni.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Skammtar eru háðir gerð deyfingar og líkamsástandi.

Eldra fólk:
Skammtar eru háðir gerð deyfingar og líkamsástandi.

Akstur:
Fer eftir gerð deyfingar, fáið upplýsingar hjá lækni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Forðast skal að gefa lyfið í æð vegna hættu á eituráhrifum.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.