Catiolanze

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Glákulyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: LatanóprostSkráð 1. febrúar 2025

Catiolanze er notað við háum augnþrýstingi og gleiðhornsgláku.. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu á augnvökva og frárennslis hans, með þeim afleiðingum að vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði um þær minnkað. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundir, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Latanóprost, virka innihaldsefni lyfsins, eykur frárennsli augnvökva og dregur með því úr þrýstingi í auganu.

Notkun á lyfjum

LyfjaformAugndropar.
Venjulegar skammtastærðir1 dropi í auga einu sinni á dag, helst að kvöldi.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram3-4 klst.
VerkunartímiA.m.k. 24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum, varið ljósi þar sem börn hvorki ná til né sjá. Eftir að stakskammtaílátin hafa verið opnuð skal nota lyfið strax og farga stakskammtaílátinu eftir notkun.
Ef skammtur gleymistNotaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunFylgjast þarf reglulega með augnþrýstingi til að meta áhrif lyfsins.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Erting í augum, roði í augum
    Leitið til læknis
  • Litabreytingar í lithimnu
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Roði og bólga í augum eða augnlokum
    Leitið til læknis
  • Útbrot
    Leitið til læknis
  • Verkur fyrir brjósti, mæði
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú notir augnlinsur
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Lyfið er ekki ráðlagt á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið getur borist í brjóstamjólk. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið.
BörnLyfið er ætlað börnum frá 4 ára aldri. Börn taka sama skammt og fullorðnir.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið þokusýn í stuttan tíma, þá skal ekki aka fyrr en sjónin verður skýr aftur.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
AnnaðRotvarnarefni í augndropunum geta skemmt mjúkar augnlinsur. Fjarlægja skal augnlinsur fyrir notkun og þær má setja í að nýju 15 mín. síðar.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.