Cefazolina Normon

Sýklalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Cefazólín

Markaðsleyfishafi: Sandoz | Skráð: 9. mars, 2018

Cefazolina Normon er sýklalyf í flokki lyfja sem kallast cefalóspórín. Það er er notað við meðferð alvarlegra bakteríusýkinga hjá fullorðnum og börnum. Virka efnið í lyfinu heitir cefazólín og það drepur bakteríur með því að hindra að þær geti myndað bakteríuvegg.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf.

Venjulegar skammtastærðir:
Læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður gefur þér lyfið í bláæð. Skammtur er ákvarðaður í samræmi við sýkingu, ástand sjúklings og næmi fyrir cefazólíni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Einstaklingsbundið.

Verkunartími:
Einstaklingsbundið.

Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að nota.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólga í andliti, vörum eða hálsi og öndunarerfiðleikar      
Húðútbrot          
Niðurgangur          
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar      
Ógleði og uppköst          
Verkur á stungustað          

Milliverkanir

Cefazólín getur valdið truflunum á efnaskiptum K1 vítamíns, sérstaklega í tilfellum K1 vítamínskorts. K vítamíngjöf gæti verið þörf.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hefur fengið alvarleg ofnæmisviðbrögð við einhverju öðru sýklalyfi

Meðganga:
Æskilegt er að forðast notkun cefazolín á meðgöngu, nema brýna nauðsyn beri til.

Brjóstagjöf:
Cefazólín skilst út í brjóstamjólk, meta þarf ávinning og áhættu þess að nota lyfin samhliða brjóstagjöf.

Börn:
Lyfið má gefa börnum frá eins mánaða aldri og ráðast þá skammtar af þyngd.

Eldra fólk:
Engin þörf er á skammtaaðlögun.

Akstur:
Lyfið getur valdið aukaverkunum sem hafa áhrif á hæfni þína til aksturs. Hver og einn veðrur að meta getu sína til aksturs.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.