Celecoxib Actavis
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: CelekoxíbSkráð 1. desember 2014
Celecoxib Actavis er nýlegt gigtarlyf með bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi áhrif. Eins og önnur bólgueyðandi gigtarlyf dregur virka efnið celekoxíb úr myndun prostaglandína í líkamanum, en prostaglandín hafa víðtæk áhrif í líkamanum og stjórna meðal annars bólgumyndun. Celekoxíb er sértækara en eldri lyfin og það dregur ekki eins víða úr myndun prostaglandína. Með sérhæfninni er dregið úr aukaverkunum lyfsins, sérstaklega hættu á magasári. Bólgueyðandi og verkjastillandi áhrif þess eru sambærileg við eldri lyfin. Lyfið er notað við einkennum af völdum slitgigtar, iktsýki og hryggikt.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | C90X-200 |
| Gerð | Hylki |
|---|---|
| Deilistrik | Nei |
| Styrkur | 200 mg |
Notkun á lyfjum
LyfjaformHylki til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir100-200 mg í senn 1-2svar á dag. Hylkin gleypist heil.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram30-60 mín. Verkun kemur seinna fram ef lyfið er tekið með mat.
Verkunartími12-24 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEkki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulegir ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.
LangtímanotkunLangtímanotkun lyfsins ætti að vera án vandkvæða. Þó er ráðlegt að fara reglulega í skoðun til læknis ef þú þarft að nota lyfið lengur en í nokkra mánuði í senn.
Aukaverkanir
Algengar aukaverkanir (>1%):
- Bjúgur í útlimumLeitið til læknis
- Kviðverkir, niðurgangur, meltingartruflanir, vindgangurLeitið til læknis
- Svimi, svefnleysiLeitið til læknis
- Sýkingar í efri öndunarfærumLeitið til læknis
- ÚtbrotLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- GulaLeitið til læknis
- Ósamhæfðar hreyfingarLeitið til læknis
- Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettirLeitið strax til læknis
- Hjartsláttarónot, háþrýstingurLeitið strax til læknis
- Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagiLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með magasár
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú reykir
- þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólkÍ upphafi skal gefa minni skammta (200 mg á sólarhring), má svo auka í 400 mg á sólarhring.
AksturLyfið getur valdið svima eða syfju. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiGetur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Áletrun | C90X-200 |
| Gerð | Hylki |
|---|---|
| Deilistrik | Nei |
| Styrkur | 200 mg |








