Cipramil

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Geðdeyfðarlyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G/0: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: CítalópramSkráð 1. apríl 1993

Cipramil er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir nýlegum flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu hluti af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Cítalópram, virka efnið í Cipramil, og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa þó ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að cítalópram og skyld lyf valdi höfuðverk, svefntruflunum, minnkaðri kynhvöt eða kyngetu og ógleði. Flestar þessar aukaverkanir eru verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Cítalópram er aðallega notað við geðdeyfð en getur einnig haft áhrif á ofsahræðslu (panic disorder).

Tafla 10 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir10-40 mg á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur fram2-3 vikur.
VerkunartímiEkki að fullu þekktur.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsSjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir hafa verið stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði, sem kemur fram hjá um 7% sjúklinga. Flestar aukaverkanir lyfsins eru verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Aukin eða minnkuð matarlyst
    Leitið til læknis
  • Blæðingatruflanir
    Leitið til læknis
  • Breytt bragðskyn, aukin munnvatnsframleiðsla
    Leitið til læknis
  • Hiti, hrollur
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi, þreyta
    Leitið til læknis
  • Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónot
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir, hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, vindgangur
    Leitið til læknis
  • Minnkuð kynhvöt eða getuleysi
    Leitið til læknis
  • Munnþurrkur, aukin svitamyndun
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Sjóntruflanir
    Leitið til læknis
  • Skjálfti
    Leitið til læknis
  • Taugaveiklun, óróleiki, svefntruflanir
    Leitið til læknis
  • Útbrot og mikill kláði
    Leitið til læknis
  • Þyngdarbreytingar
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Krampar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginkgo geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkilyfjum til inntöku.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú hafir átt í erfiðleikum með þvaglát
  • þú sért með blæðingartilhneigingu
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með flogaveiki eða hafir fengið flog
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.
Eldra fólkMinni skammtar eru notaðir.
AksturLyfið getur dregið úr dómgreind og viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÁhrif áfengis á lyfið eru ekki að fullu þekkt, því er óæskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Annað 
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.