Ciprofloxacin Navamedic

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sýklalyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: CíprófloxacínSkráð 1. maí 2021

Cíprófloxacín er breiðvirkt sýklalyf. Það hindrar afritun erfðaefnis í bakteríum og kemur þannig í veg fyrir að frumur skipti eða fjölgi sér. Cíprófloxacín er notað við ýmsum bakteríusýkingum, t.d. í þvagfærum, blöðruhálskirtli, maga og þörmum. Það þolist yfirleitt vel og aukaverkanir þess eru tiltölulega fátíðar. Lyfið hentar þó síður börnum eða þunguðum konum þar sem það getur hugsanlega valdið sinaskemmdum og liðbólgu í börnum. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur cíprófloxacín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans og því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.

Notkun á lyfjum

LyfjaformInnrennslislyf í bláæð
Venjulegar skammtastærðirSkammtar fara eftir tegund og alvarleika sýkingarinnar. Læknirinn gefur hvern skammt með hægu innrennsli í bláæð svo hann berist í út í blóðrás.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMisjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.
VerkunartímiUm 12 klst. eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðForðist koffein á meðan lyfið er tekið. Mjólkurmatur og steinefnabættur ávaxtasafi getur dregið úr nýtingu á lyfinu, taktu því lyfið 1 klst. fyrir eða 2 klst. eftir að hafa neytt slíkra drykkja eða mjólkurmatar.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Innrennslislyfið má ekki geyma í kæli og það má ekki frjósa.
Ef skammtur gleymistEf þú heldur að það gleymdist að gefa þér skammt skaltu láta lækninn eða hjúkrunarfræðing vita. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að gefa.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsTaktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp og að bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.
Ef tekinn er of stór skammturEf þú færð stærri skammt af Ciprofloxacin Fresenius Kabi en mælt er fyrir um getur verið að þú finnir fyrir sundli, skjálfta, höfuðverk, þreytu, óþægindum í kvið eða ringlun. Láttu lækninn eða hjúkrunarfræðing vita ef þessara einkenna verður vart.
LangtímanotkunCíprófloxacín er yfirleitt notað í skamman tíma í einu. Ef þörf þykir að nota það í langan tíma er æskilegt að fylgst sé reglulega með starfsemi nýrna og lifrar.

Aukaverkanir

Listi yfir aukaverkanir er ekki tæmandi.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Æsingur, skjálfti, rugl
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, kviðverkir, vindgangur
    Leitið til læknis
  • Minnkuð matarlyst
    Leitið til læknis
  • Ógleði, uppköst, niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Svimi, höfuðverkur, þreyta
    Leitið til læknis
  • Útbrot, kláði og hiti í húð
    Leitið til læknis
  • Viðbrögð á stungustað (innrennslislyf)
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið strax til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Hraður hjartsláttur
    Leitið strax til læknis
  • Krampar
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaÆskilegt er að forðast notkun Ciprofloxacin Fresenius Kabi á meðgöngu.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
BörnSkammtar eru háðir sýkingu og líkamsþyngd.
Eldra fólkSkammtar eru háðir sýkingu.
AksturÍ stöku tilfellum getur lyfið valdið svima og skert þannig aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og keppni.
AnnaðForðast skal sólarljós og útfjólublátt ljós í miklum mæli meðan á meðferð stendur.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.