Clindamycin EQL Pharma

Sýklalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Klindamýcín

Markaðsleyfishafi: EQL Pharma AB | Skráð: 1. maí, 2019

Clindamycin EQL Pharma er breiðvirkt sýklalyf. Virka efnið klindamýcín hindrar próteinframleiðslu í bakteríum og hemur þar með vöxt þeirra. Klindamýcín er notað við sýkingum af völdum baktería sem eru næmar fyrir því í koki og í húð og mjúkvefjum. Lyfið er stundum notað í stað pensilíns hjá sjúklingum með pensilínofnæmi og í stað annarra sýklalyfja sem bakteríur hafa myndað ónæmi fyrir. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur klindamýcín raskað eðlilegri bakteríuflóru líkamans en því getur fylgt aukin hætta á sýkingum af völdum sveppa eða baktería sem eru ónæmar fyrir lyfinu.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Hylki til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 300 mg 2svar á dag eða 150 mg 3-4 sinnum á dag. Við alvarlegri sýkingar 300 mg 3-4 sinnum á dag. Börn 30-45 kg: 150 mg 3svar á dag. Börn undir 30 kg: 10-20 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag skipt í 3-4 skammta. Hylkin takist inn með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir því hvar sýkingin er og hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu. Eftir inntöku nær lyfið hámarksþéttni í blóði á 45 mín.

Verkunartími:
Misjafn eftir því hversu næmir sýklarnir eru fyrir lyfinu.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Láttu líða a.m.k. 2 klst. til næsta skammts og haltu svo áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér upp aftur og bakteríur myndi ónæmi fyrir lyfinu.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda.

Langtímanotkun:
Klindamýcín er aðalega notað í skamman tíma í senn. Við langtímanotkun mun læknirinn taka blóðsýni reglulega til að fylgjast með hvort lifrar- og nýrnastarfsemi sé eðlileg hjá þér.


Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eftir inntöku eru óþægindi í meltingarvegi og koma fram hjá um 8% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Niðurgangur        
Ógleði          
Uppköst          
Útbrot og mikill kláði        
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Húðútbrot: Blöðrumyndun og flögnun húðar og á slímhúð, t.d. munni og kynfærum.      

Milliverkanir

.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með eða hefur verið með sjúkdóm í þörmunum

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.