Clopidogrel Actavis
Lyfseðilsskylt
Klópídógrel, virka efnið í lyfinu, hefur blóðþynnandi áhrif. Það kemur í veg fyrir samloðun blóðflagna, sem er fyrsta skrefið í blóðstorknun og myndun á blóðtappa. Klópídógrel lengir einnig blæðingartíma. Lyfið er forlyf og þarf því að umbrotna í líkamanum áður en verkun þess kemur fram. Ef blóðtappi myndast og stíflar slagæð kemur fram blóðþurrð og jafnvel drep í vefjum sem æðin liggur til. Stífli blóðtappi bláæð myndast bjúgur og bólga í vefjum sem æðin liggur frá. Æðakölkun veldur æðaþrengingu og auknum líkum á því að blóðtappi nái að myndast. Clopidogrel Actavis er notað til að fyrirbyggja heila- eða hjartadrep vegna blóðtappa og við sjúkdómum í útlægum slagæðum.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Lyfið þolist almennt vel. Blæðing er algengasta aukaverkunin.
Milliverkanir
Gæta skal varúðar við samhliða gjöf klópídógrels og asetýlsalicýlsýru, heparíns og segavarnarlyfja vegna hugsanlegrar hættu á aukinni blæðingahættu. Bólgueyðandi gigtarlyf geta valdið sárum í meltingarvegi og samhliða gjöf klópídógrels getur það aukið blæðingahættu. Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu.








