Contalgin

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Verkjalyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: MorfínSkráð 1. ágúst 1984

Morfín er sterkt verkjastillandi lyf. Lyfið hefur áhrif á miðtaugakerfið og hindrar það að sársaukaboð berist þangað. Verkjastillandi áhrif morfíns eru tiltölulega skammvinn, en til þess að fá fram lengri verkunartíma eru oft notuð lyfjaform þar sem lyfið losnar hægt á lengri tíma. Auk verkjastillandi áhrifa getur morfín dregið úr hósta og minnkað þarmahreyfingar. Ávanahætta af morfíni er mikil og sé lyfið notað til langs tíma myndast þol við áhrifum þess. Morfín er notað við miklum sársauka, til dæmis vegna krabbameins, skurðaðgerða eða mikilla áverka.

Tafla 5 mg Tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformForðatöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirSkammtar eru einstaklingsbundnir og háðir aldri, því hversu miklir verkirnir eru og fyrri notkun verkjalyfja. Börn: Upphafsskammtur er 1 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Töflurnar gleypist heilar.
Hversu langur tími uns verkun kemur framInnan við 4 klst.
VerkunartímiMisjafn eftir einstaklingum. 4-12 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu skammtinn sem fyrst og haltu síðan áfram að taka lyfið með sama millibili og áður frá þessum skammti. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEf ástæður eru ekki lengur til fyrir því að taka lyfið má hætta töku þess. Hafi lyfið verið tekið í langan tíma eða stórum skömmtum gætu komið fram fráhvarfseinkenni þegar töku þess er hætt. Hafðu samband við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturHafðu samband við lækni sem fyrst. Ef öndun er hæg eða óregluleg, eða ef meðvitund skerðist þarf að koma sjúklingi strax til læknis.
LangtímanotkunÞol myndast við áhrifum morfíns og því getur þurft að stækka skammta. Meiri hætta er á því að mynda ávana og fíkn sé lyfið tekið í langan tíma.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru ógleði, uppköst, hægða- og þvagtregða, sljóvgandi áhrif og víkkun sjáaldurs. Þol myndast að einhverju leyti við þessum aukaverkunum.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Ógleði, uppköst, hægðatregða
    Leitið til læknis
  • Sjóntruflanir
    Leitið til læknis
  • Sljóleiki, svimi
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis
  • Þvagtregða
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Lyfið eykur áhrif svefnlyfja. Náttúrulyfin Jóhannesarjurt og valeriana geta aukið sefandi áhrif lyfsins.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með lungnasjúkdóm, svo sem astma eða berkjubólgu
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaLyfið getur haft áhrif á fóstur og/eða nýbura.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk.
BörnMorfín er almennt ekki gefið börnum. Minni skammtar eru notaðir.
Eldra fólkAuknar líkur eru á aukaverkunum, oftast eru minni skammtar notaðir.
AksturSjúklingar sem þurfa á morfíni að halda eru líklegast ekki í ástandi til að stjórna ökutækjum en lyfið sjálft hefur einnig sljóvgandi áhrif og skerðir aksturshæfni.
ÁfengiÁfengi eykur sljóvgandi áhrif morfíns. Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
ÍþróttirBannað í keppni.
FíknarvandamálContalgin getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.