Copaxone

Æxlishemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Glatíramerasetat

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 23. janúar, 2004

Copaxone er notað til meðferðar á versnandi heila- og mænusiggi (MS sjúkdómi). Copaxone er notað til meðferðar fyrir sjúklinga sem geta gengið hjálparlaust. Þasð má einnig nota fyrir sjúklinga sem í fyrsta sinn hafa fengið einkenni sem benda til mikillar hættu á MS. Talið er að einkenni MS stafi af galla í ónæmiskerfi líkamans. Staðbundnir bólgublettir myndast í heilanum og mænunni. Verkunarháttur glatíramerasetat, virka efnið í lyfinu, er ekki að fullu þekktur.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í áfylltri sprautu.

Venjulegar skammtastærðir:
Ein áfyllt sprauta (20 mg) á dag gefin með inndælingu undir húð.

Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá í kæli (2°C-8°C). Lyfið má ekki frjósa. Copaxone geymist í allt að mánuð við stofuhita (15°C-25°C).

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið eins fljótt og þú manst eftir því, en notaðu ekki tvöfaldan skammt til að bæta upp fyrir skammt sem hefur gleymst. Notaðu næsta skammt 24 klst. síðar.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef þú notar of stóran skammt hafðu þá tafarlaust hafa samband við lækni eða eitrunarmiðstöð (543 2222).

Langtímanotkun:
Virðist án vandkvæða.


Aukaverkanir

Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum. Listinn er ekki tæmandi, sjá fylgiseðil fyrir allar aukaverkanir.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Flensulík einkenni          
Gula        
Höfuðverkur, slappleiki          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar        
Staðbundinn roði, þroti og eymsli á stungustað          
Þunglyndi          
Hjartsláttarónot, brjóstverkur og mæði        

Milliverkanir

Milliverkanir milli Copaxone og annarra lyfja hafa ekki verið rannsakaðar með formlegum hætti.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun Copaxone á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Copaxone má nota meðan á brjóstagjöf stendur

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.

Akstur:
Hver og einn þarf að meta getu sína til aksturs.

Annað:
Einungis sérfræðilæknar í taugasjúkdómum með sérþekkingu og reynslu í meðferð á MS mega ávísa lyfinu.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.