Corsodyl
Munn- og tannlyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf
Virkt innihaldsefni: Klórhexidín
Markaðsleyfishafi: Haleon Denmark ApS | Skráð: 1. september, 1982
Klórhexidín er sýkladrepandi. Það er notað sem munnskol við tannholdsbólgu, til að hamla tannsteinsmyndun og til að koma í veg fyrir sýkingar við aðgerðir í munni. Munnskolið hefur einnig notagildi við munnangri og til tannhreinsunar þegar vandkvæði eru á tannburstun. Hlaupið er notað til að koma í veg fyrir tannsteinsmyndun og tannholdsbólgu.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Munnholshlaup
Venjulegar skammtastærðir:
Notað til tannburstunar 1-2svar á dag.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið byrjar strax að virka, en nokkur tími getur liðið áður en tannholdsbólga eða munnangur hverfa.
Verkunartími:
Verkun varir í nokkrar klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymist:
Lyfið er venjulega ekki notað að staðaldri.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ef lyfið er notað við munnangri, tannsteinsmyndun eða tannholdsbólgu má hætta notkun þess hvenær sem hentar.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stórir skammtar útvortis ættu ekki að skapa vanda.
Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.
Aukaverkanir
Brúnir blettir á tönnum hverfa oftast af sjálfu sér þegar notkun lyfsins lýkur. Ef þeir hverfa ekki getur tannlæknir náð þeim af. Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Breytt bragðskyn, sviðatilfinning í tungu | ![]() |
![]() |
|||||
Brúnir blettir á tungu eða tönnum | ![]() |
![]() |
|||||
Erting eða bólga í tannholdi | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Ákveðin hreinsiefni geta dregið úr áhrifum lyfsins.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
Getur haft áhrif á
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af staðbundinni notkun lyfsins meðan á meðgöngu stendur.
Brjóstagjöf:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf.
Börn:
Venjulegar skammtastærðir.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Inniheldur alkóhól. Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.
Annað:
Lyfið má ekki berast í augu eða eyru.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.