Coxerit
Lyfseðilsskylt
Coxerit er gigtarlyf með bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi áhrif. Eins og mörg eldri gigtarlyf dregur virka efnið etorícoxíb úr myndun prostaglandína í líkamanum, en prostaglandín hafa víðtæk áhrif í líkamanum og stjórna meðal annars bólgumyndun. Etorícoxíb er þó sértækara en eldri lyfin og dregur ekki eins víða úr myndun prostaglandína. Með sérhæfninni er dregið úr aukaverkunum lyfsins, sérstaklega hættu á magasári, á meðan bólgueyðandi og verkjastillandi áhrif eru sambærileg við eldri lyfin. Lyfið er notað við einkennum af völdum slitgigtar, iktsýki og hryggikt og við verkjum og bólgueinkennum, tengdum bráðri þvagsýrugigt. Etorícoxíb er einnig notað við meðalslæmum verkjum eftir tannaðgerð hjá þeim sem eru 16 ára eða eldra.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
- Bjúgur, hár blóðþrýstingurLeitið til læknis
- Flekkblæðingar í húðLeitið til læknis
- Hækkaður blóðþrýstingurLeitið til læknis
- HjartsláttarónotLeitið til læknis
- Höfuðverkur, svimiLeitið til læknis
- Kviðverkir, ógleði, niðurgangurLeitið til læknis
- Meltingartruflanir, vindgangur, brjóstsviðiLeitið til læknis
- Þreyta, máttleysi og flensulík einkenniLeitið til læknis
- SýkingarLeitið til læknis
- Verkur fyrir brjósti, mæðiLeitið strax til læknis
- GulaLeitið strax til læknis
- Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagiLeitið strax til læknis
- Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Lyfið getur dregið úr verkun þvagræsilyfja og annarra blóðþrýstingslækkandi lyfja.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með magabólgur eða bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú reykir
- þú takir einhver önnur lyf








