Coxient

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: EtorícoxíbSkráð 1. júlí 2017

Coxient er gigtarlyf með bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi áhrif. Eins og mörg eldri gigtarlyf dregur virka efnið etorícoxíb úr myndun prostaglandína í líkamanum, en prostaglandín hafa víðtæk áhrif í líkamanum og stjórna meðal annars bólgumyndun. Etorícoxíb er þó sértækara en eldri lyfin og dregur ekki eins víða úr myndun prostaglandína. Með sérhæfninni er dregið úr aukaverkunum lyfsins, sérstaklega hættu á magasári, á meðan bólgueyðandi og verkjastillandi áhrif eru sambærileg við eldri lyfin. Lyfið er notað við einkennum af völdum slitgigtar, iktsýki og hryggikt og við verkjum og bólgueinkennum, tengdum bráðri þvagsýrugigt.

Tafla 30 mg Filmuhúðuð tafla

Notkun á lyfjum

LyfjaformTöflur til inntöku.
Venjulegar skammtastærðir30-120 mg í senn einu sinni á dag.
Hversu langur tími uns verkun kemur framMisjafnt eftir sjúkdómsástandi. Slitgigt, iktsýki og hryggikt: Áhrif koma fram á öðrum degi meðferðar. Þvagsýrugigtarköst: Verkjastillandi verkun kemur fram um 4 klukkustundum eftir gjöf. Verkur eftir tannaðgerð: Verkjastillandi verkun kemur fram um 30 mínútum eftir gjöf.
VerkunartímiMisjafnt eftir sjúkdómsástandi.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin, en lyfið virkar heldur fyrr ef það er tekið á fastandi maga.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsEinkenni geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.
LangtímanotkunLangtímanotkun lyfsins ætti að vera án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun til læknis ef þú þarft að nota lyfið lengur en í nokkra mánuði í senn.

Aukaverkanir

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Bjúgur, hár blóðþrýstingur
    Leitið til læknis
  • Flekkblæðingar í húð
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttarónot
    Leitið til læknis
  • Höfuðverkur, svimi
    Leitið til læknis
  • Kviðverkir, ógleði, niðurgangur
    Leitið til læknis
  • Meltingartruflanir, vindgangur, brjóstsviði
    Leitið til læknis
  • Þreyta, máttleysi og flensulík einkenni
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Rugl, ofskynjanir
    Leitið til læknis
  • Sýkingar
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttartruflanir
    Leitið strax til læknis
  • Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi
    Leitið strax til læknis
  • Verkur fyrir brjósti, mæði
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Milliverkanir

Lyfið getur dregið úr verkun þvagræsilyfja og annarra blóðþrýstingslækkandi lyfja.

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með magabólgur eða bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfEkki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
BörnLyfið er ekki ætlað börnum yngri en 16 ára.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið svima eða syfju. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiGetur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.