Dabigatran Etexilate Teva
Segavarnarlyf
Lyfseðilsskylt
Verðflokkur G: Lyfið er niðurgreitt og fellur inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: DabigatranSkráð 19. febrúar 2024
Dabigatran Etexilate Teva er segavarnarlyf sem inniheldur virka efnið dabigatran etexílat. Lyfið er notað hjá fullorðnum til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa í bláæðum eftir liðskiptaaðgerð. Lyfið er einnig notað hjá börnum sem meðferð við blóðtöppum og til að koma í veg fyrir endurtekna blóðtappamyndun. Dabigatran etexílat er forlyf sem breytist í dabigatran i líkamanum. Dabigatran kemur í veg fyrir segamyndun með því að hindra efni sem tekur þátt í storkuferlinu og kallast trombín.
Notkun á lyfjum
LyfjaformHylki til inntöku.
Venjulegar skammtastærðirTil að fyrirbyggja blóðtappa eftir liðskiptaaðgerð: 220 mg 1 sinni á dag. Skammtar geta verið háðir aldri, nýrnastarfsemi og því hvort önnur lyf séu tekin. Hjá börnum er skammtastærð háð aldri og þyngd, en skammtar eru frá 75-300 mg 2svar á dag. Lyfið má taka með eða án matar en hylkið skal gleypa í heilu lagi.
Hversu langur tími uns verkun kemur framFljótlega eftir inntöku.
VerkunartímiUm sólarhringur.
GeymslaGeymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ef skammtur gleymistForvörn gegn myndun blóðtappa eftir aðgerð: Taka næsta skammt á réttum tíma, ekki a að tvöfalda skammta til að bæta upp fyrir þann sem gleymdist.
Meðferð við blóðtöppum og til að koma í veg fyrir blóðtappamyndun hjá börnum: Það má taka skammtinn sem gleymdist allt að 6 klst fyrir næsta áætlaða skammt. Ef það eru minna en 6 klst í næsta skammt skal sleppa þeim skammt sem gleymdist, ekki á að tvöfalda skammta til að bæta upp fyrir þann sem gleymdist.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsLyfið skal taka eins og læknir segir til um. Ekki skal hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.
Ef tekinn er of stór skammturHafa skal samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (543 2222).
LangtímanotkunÞegar lyfið er notað til að koma í veg fyrir blóðtappa eftir aðgerð er lyfið notað tímabundið. Eftir hnéskipti er lyfið tekið í 10 daga. Eftir mjaðmaskipti er lyfið tekið í 28-35 daga.
Aukaverkanir
Algengar aukaverkanir (>1%):
- BlóðnasirLeitið til læknis
- HárlosLeitið til læknis
- HúðbreytingarLeitið til læknis
- Húðútbrot og kláðiLeitið til læknis
- Meltingartruflanir, niðurgangurLeitið til læknis
- Ógleði, uppköst, bakflæði í vélindaLeitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
- Einkenni um verulega blæðingu:Leitið strax til læknis
- mikið þróttleysi, þreyta, fölvi, sundl, höfuðverkur, óútskýrð bólgaLeitið strax til læknis
- Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Látið lækni vita af öllum lyfjum sem þú tekur. Jóhannesarjurt getur milliverkað með lyfinu og því á ekki að taka hana á meðan meðferð stendur.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með magabólgur eða bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir blæðingartilhneigingu
- þú hafir fengið hjartaáfall
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með gervihjartalokur
MeðgangaÁhrif lyfsins á fóstur eru ekki þekkt. Forðast skal að nota lyfið á meðgöngu og að verða þunguð á meðan meðferð stendur.
BrjóstagjöfÞað má ekki vera með barn á brjósti á meðan meðferð með Dabigatran Etexilate Teva stendur.
BörnLyfið er ætlað börnum 8 ára og eldri.
Eldra fólkMinni skammtar eru ráðlagðir fyrir 75 ára og eldri eðaþá sem hafa skerta nýrnastarfsemi.
AksturLyfið hefur ekki áhrif á hæfni til aksturs.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.








