Dabigatran etexilate Medical Valley
Lyfseðilsskylt
Dabigatran etexilate Medical Valley er segavarnarlyf sem inniheldur virka efnið dabigatran etexílat. Lyfið er notað hjá fullorðnum til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa hjá þeim sem eru með ákveðna tegund af óreglulegum hjartslætti sem kallast gáttatif án hjartalokusjúkdóms og a.m.k. einn annan áhættuþátt til viðbótar. Lyfið er einnig notað hjá fullorðnum og börnum til meðferðar við blóðtöppum og til að koma í veg fyrir endurtekna blóðtappamyndun. Dabigatran etexílat er forlyf sem breytist í dabigatran i líkamanum. Dabigatran kemur í veg fyrir segamyndun með því að hindra efni sem tekur þátt í storkuferlinu og kallast trombín.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
- BlóðnasirLeitið til læknis
- HárlosLeitið til læknis
- MeltingartruflanirLeitið til læknis
- Ógleði, uppköst, niðurgangurLeitið til læknis
- VélindabakflæðiLeitið til læknis
- BlæðingLeitið til læknis
- Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Látið lækni vita af öllum lyfjum sem þú tekur. Jóhannesarjurt getur milliverkað með lyfinu og því á ekki að taka hana á meðan meðferð stendur.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með magabólgur eða bólgusjúkdóm í þörmum
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú hafir blæðingartilhneigingu
- þú hafir fengið hjartaáfall
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með gervihjartalokur








