Dasergin

Ofnæmislyf | Verðflokkur: G/0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Deslóratadín

Markaðsleyfishafi: Krka | Skráð: 1. apríl, 2020

Deslóratadín, virka efnið í lyfinu, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má draga úr einkennum ofnæmis eða koma alveg í veg fyrir þau. Dasergin er gefið við ofnæmisnefkvefi og slær á ofnæmiseinkenni eins og hnerra, nefrennsli, kláða, tárarennsli og roða í augum. Lyfið er einnig notað við ofsakláða. Deslóratadín hefur ekki róandi eða sljóvgandi áhrif.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 5 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 30 - 60 mín.

Verkunartími:
Um 1 sólarhring eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að taka lyfið. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Ef lyfið er tekið við skammvinnu ofnæmiskvefi má hætta að taka lyfið þegar ekki gerist lengur þörf fyrir því.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Ef munnþurrkur er viðvarandi getur þurrkurinn haft áhrif á slímhúðina í munninum og tannholdið.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónot        
Munnþurrkur          
Niðurgangur, ógleði, uppköst og kviðverkir          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þreyta          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hefur fengið eða ert með fjölskyldusögu um flog

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Töflurnar eru ekki ætlaðar börnum yngri en 12 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur engin eða óveruleg áhrif á aksturshæfni. Lyfið getur valdið syfju í einstaka tilfellum.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.