Depotesto
Lyfseðilsskylt
Testósterón er karlhormón. Það myndast í mestu magni í eistum karla en líka í litlu magni í eggjastokkum kvenna og nýrnahettum hjá báðum kynjum. Hormónið hefur áhrif á líkamsbyggingu, kynfæri, fitudreifingu, efnaskipti og hárvöxt en hefur auk þess vefjauppbyggjandi verkun. Depotesto er gefið karlmönnum ef lítið eða ekkert myndast af því í líkamanum, t.d. vegna sjúkdóma eða erfðagalla.
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Aukaverkanir lyfsins stafa allar af almennum áhrifum karlhormóna, þær eru háðar skömmtum og meðferðarlengd. Algengasta aukaverkunin er verkur á stungustað.
- Erting á stungustaðLeitið til læknis
- Feitari húð, þrymlabólurLeitið til læknis
- ÞyngdaraukningLeitið til læknis
- Aukin svitamyndunLeitið til læknis
- Brjóstastækkun, eymsli í brjóstumLeitið til læknis
- Höfuðverkur, sundlLeitið til læknis
- Niðurgangur, ógleðiLeitið til læknis
- Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikarLeitið til læknis
- Verkur í eistum, truflun á starfssemi blöðruhálskirtilsLeitið til læknis
Milliverkanir
Testósterón getur aukið áhrif blóðþynnandi lyfja. Ekki er ráðlagt að gefa testósterón samhliða barksterum þar sem það eykur líkur á bjúgmyndun. Notkun andrógena (testósteróns) getur minnkað insúlínþörf hjá sykursjúkum.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með mígreni
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sjúkdóm í blöðruhálskirtli
- þú sért með sykursýki
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með krabbamein
- þú sért með kæfisvefn
- þú sért með skerta lifrar-, hjarta- eða nýrnastarfsemi








