Desirett
Lyfseðilsskylt
Desirett er getnaðarvörn. Lyfið inniheldur virka efnið desógestrel sem er hormón sem hefur sömu áhrif á líkamann og kvenhormónið prógesterón. Lyfið hentar helst konum sem eru með barn á brjósti og er gjarnan kallað brjóstapillan eða mínípillan. Desógestrel hindrar egglos og veldur líka breytingum á slímhúð legsins á þá leið að frjóvguð eggfruma nær síður að hreiðra þar um sig. Slímið í leghálsinum þykknar og sáðfrumur komast fyrir vikið ekki greiðlega upp leghálsinn.

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Breidd | 2,9 mm |
| Þvermál | 5 mm |
| Styrkur | 75 mg |
Notkun á lyfjum
Aukaverkanir
Algengasta aukaverkun lyfsins er blæðingaróregla. Eftir 2ja mánaða meðferð hefur tilhneyging til blæðinga minnkað.
- Bólur í húðLeitið til læknis
- Eymsli í brjóstumLeitið til læknis
- Minnkuð kynhvötLeitið til læknis
- Ógleði, höfuðverkurLeitið til læknis
- Óreglulegar tíðablæðingarLeitið til læknis
- SkapgerðarbreytingarLeitið til læknis
- ÞyngdaraukningLeitið til læknis
- OfsakláðiLeitið strax til læknis
- Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjóstiLeitið strax til læknis
- Bólga í andliti, vörum eða hálsi og öndunarerfiðleikarLeitið strax til læknis
Milliverkanir
Jóhannesarjurt, ginseng og lyf og náttúruvörur sem örva lifrarensím geta minnkað virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf.
Nánari upplýsingar
Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:
- grunur leiki á um þungun
- þú sért með flogaveiki
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú sért með sykursýki
- þú eigir sögu um blóðtappa
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
- þú hafir sögu um brjóstakrabbamein eða illkynja æxli
- þú sért með ofnæmi fyrir hnetum og soja

| A-hlið | B-hlið | |
|---|---|---|
| Litur | Hvítur | Hvítur |
| Gerð | Filmuhúðuð tafla |
|---|---|
| Lögun | Hringlaga |
| Deilistrik | Nei |
| Breidd | 2,9 mm |
| Þvermál | 5 mm |
| Styrkur | 75 mg |








