Diflucan

Lyfjabokin 05 (1)
Leitaðu í Lyfjabókinni Hér finnur þú öll skráð lyf á Íslandi sem seld eru í apótekum
Sveppalyf

Lyfseðilsskylt

Verðflokkur 0: Lyfið er ekki niðurgreitt og fellur ekki inn í greiðsluþrepakerfiðVirkt innihaldsefni: FlúkónazólSkráð 1. apríl 1990

Diflucan, sem inniheldur virka efnið flúkónazól, er sveppahemjandi lyf. Það raskar starfsemi í frumum sveppa og hindrar vöxt þeirra. Flúkónazól hefur áhrif á margar sveppategundir og er oft notað við sveppasýkingum í slímhúð, leggöngum, þvagfærum og húð. Það er einnig notað til að fyrirbyggja sveppasýkingar hjá einstaklingum með bælt ónæmiskerfi. Aukaverkanir flúkónazóls eru flestar vægar og það þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir þess eru tíðari eftir því hvað skammtarnir eru stórir eða tíminn langur sem það er tekið. Lyfið getur skert lifrarstarfsemi þeirra sem eru með einhverja lifrarsjúkdóma fyrir. Þessi áhrif ganga oftast til baka þegar meðferð hættir.

Notkun á lyfjum

LyfjaformMixtúra til inntöku og innrennslislyf í æð.
Venjulegar skammtastærðirSkammtar eru háðir eðli sýkingar. Fullorðnir: 50-400 mg í senn einu sinni á dag. Börn: 3-12 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Innrennslislyfið er eingöngu notað á sjúkrahúsum. Mixtúran hristist fyrir notkun.
Hversu langur tími uns verkun kemur framLyfið byrjar að virka innan nokkurra klst. Misjafnt er hvenær áhrifin koma fram, eða eftir því hvaða sveppategund veldur sýkingu, hvar sýkingin er og hvaða lyfjaform er notað.
VerkunartímiUm 1 sólarhringur eftir stakan skammt.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekiðEngin.
GeymslaGeymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Uppleyst mixtúra geymist í 28 daga.
Ef skammtur gleymistTaktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsinsTaktu lyfið eins lengi og læknir segir til um eða ljúktu við skammtinn sem var úthlutaður, jafnvel þótt einkenni sýkingarinnar séu ekki lengur til staðar. Annars er hætta á því að sýkingin nái sér aftur upp.
Ef tekinn er of stór skammturStakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
LangtímanotkunÁn vandkvæða.

Aukaverkanir

Um 10% þeirra sem taka lyfið finna fyrir einhverjum af aukaverkunum þess.

Algengar aukaverkanir (>1%):
  • Kviðverkir, niðurgangur
  • Höfuðverkur
    Leitið til læknis
  • Ógleði og uppköst
    Leitið til læknis
  • Útbrot
    Leitið til læknis
Sjaldgæfar aukaverkanir (<1%):
  • Gula
    Leitið til læknis
  • Hjartsláttartruflanir
    Leitið til læknis
  • Krampar
    Leitið til læknis
  • Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
    Leitið strax til læknis
  • Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
    Leitið strax til læknis

Nánari upplýsingar

Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni áður en lyfið er notað ef:

  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
MeðgangaTakmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.
BrjóstagjöfLyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.
BörnSkammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólkVenjulegar skammtastærðir.
AksturLyfið getur valdið sundli eða flogum. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.
ÁfengiÍ litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.
ÍþróttirLeyft við æfingar og í keppni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem finna má á heimsíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.