Dronedarone STADA

Hjartasjúkdómalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Dronedaron

Markaðsleyfishafi: STADA Arzneimittel | Skráð: 1. mars, 2020

Dronedarone STADA inniheldur virka efnið dronedaron og er notað til að halda hjartslætti reglulegum. Dronedarone STADA er notað hjá þeim sem eru með hjartsláttartruflanir (óreglulegan hjartslátt -gáttatif) og meðferð sem kallast rafvending hefur haft þau áhrif að hjartslátturinn er aftur orðinn eðlilegur. Dronedarone STADA kemur í veg fyrir að óreglulegur hjartsláttur endurtaki sig.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku

Venjulegar skammtastærðir:
Venjulegur skammtur er ein 400 mg tafla tvisvar á sólarhring með morgunmat og kvöldmat. Gleypa á töflurnar heilar með vatni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Getur tekið um viku að ná jafnvægi.

Verkunartími:
Nokkrir dagar og tekur lyfið um 2 vikur að skiljast að fullu úr líkamanum.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Það á að taka lyfið inn með máltíðum, morgunmat og kvöldmat

Geymsla:
Geymið lyfið við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Meðferð með Dronedarone STADA fer fram í umsjá læknis sem er sérhæfður í meðferð hjartasjúkdóma. Notið lyfið alltaf eins og læknirinn hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi.


Aukaverkanir

Ekki neyta greipaldinssafa meðan á meðferð með Dronedarone STADA stendur. Það getur aukið þéttni dronedarons í blóði og aukið líkurnar á aukaverkunum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Breyting á bragðskyni          
Gula, dökklitað þvag        
Hægur hjartsláttur          
Kláði, útbrot          
Uppköst, niðurgangur          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þreyta, magaóþægindi          
Þurr hósti          
Bólgur á fótum eða fótleggjum, erfiðleikar við öndun í liggjandi stöðu eða í svefni, mæði eða þyngdaraukning.        

Milliverkanir

Jóhannesarjurt (St. John´s Wort) og greipaldinsafi getur milliverkað við dronedaron.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • þú sért með aðra hjartasjúkdóma
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hægan púls
  • grunur leiki á um þungun eða hvort þú ráðgerir að verða þunguð
  • þú sért með barn á brjósti

Meðganga:
Ekki er ráðlagt að taka inn lyfið á meðgöngu. Hættu að taka inn lyfið ef þú verður þunguð.

Brjóstagjöf:
Áður en lyfið er tekið skal hafa samband við lækni ef þú ert með barn á brjósti. Ekki er ráðlagt að taka inn lyfið meðan á brjóstagjöf stendur.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Gæta skal varúðar þegar lyfið er notað hjá einstaklingum 75 ára og eldri ef aðrir sjúkdómar eru til staðar.

Akstur:
Lyfið hefur almennt ekki áhrif á hæfni til aksturs en aukaverkanir lyfsins, eins og þreyta, getur skert hæfni þína til aksturs.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.